09. september 2024
Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum.
Það er von undirbúningshópsins að gulur september auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju. Þetta er í annað sinn sem heill mánuður er tileinkaður árverkniátakinu og í ár er sérstök áhersla á geðrækt og sjálfsvígsforvarnir í skólum.
Við hvetjum starfsfólk og nemendur Tækniskólans til þess að sýna málefninu stuðning með því að taka þátt á gulum degi þriðjudaginn 10. september.
Það er t.d. hægt að gera með því að klæðast gulu, skreyta með gulu og með því að skapa hlýja, gula og glaða stemmingu.