Hanna saunaklefa fyrir Verk og vit
Stórsýningin Verk og vit verður haldin dagana 19.-22. mars í Laugardalshöll.
Tækniskólinn tekur þátt í sýningunni líkt og undanfarin ár.
Að þessu sinni vinna tvær deildir innan Tækniskólans að spennandi verkefni í samstarfi við BYKO sem snýr að því að hanna og byggja saunaklefa sem verður reistur í anddyri sýningarinnar í Laugardalshöll.
22 nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut taka þátt í hönnunarsamkeppni þar sem fimm hópar, sem samanstanda af fjórum til fimm nemendum, hanna og kynna eigin tillögu að saunaklefa. Dómnefnd, sem skipuð er af Tækniskólanum og BYKO, velur í kjölfarið sigurtillögu sem Byggingatækniskólinn smíðar á sýningunni.
BYKO bauð nemendum Tækniskólans í skemmtilega heimsókn til þess að kynna sér ferlið og hráefnið betur áður en að hönnunarvinnan hófst.
Ýtir nemendum út fyrir rammann
Ari Jónsson, kennari á hönnunar- og nýsköpunarbraut, er bjartsýnn og spenntur að takast á við þetta verkefni.
„Það er gríðarlega spennandi tækifæri fyrir nemendurna að hanna eitthvað sem raungerist,“
Ari leggur áherslu á að ýta nemendum sínum út fyrir rammann í hönnunarferlinu og prófa eitthvað alveg nýtt.
„Ég vil fá þau til að horfa á hlutina í öðru ljósi og reyna að brjóta eitthvað norm og hvetja þau til að hugsa um hlutina án þess að vera búin að ákveða fyrir fram hvernig útkoman eigi að vera,“
útskýrir Ari og bætir við að það sé mikilvægt í hönnunarferlinu að reyna að ýta þeim út fyrir rammann eins langt og hægt er til þess að það sé svo hægt að stíga til baka, rýna vel í valkostina og finna góðan milliveg.
Spurður nánar hvernig hönnunarferlið fari fram segir Ari að ferlið sé afar hratt að þessu sinni.
„Við byrjum á rannsóknarvinnu. Þau eru búin að kynna sér sögu gufubaða, mismunandi útfærslur og fleira. Svo förum við í skissuvinnu og hugmyndavinnu.“
Ari segir nemendurna eiga að teikna upp nokkrar skissur og koma með alls konar hugmyndir hratt, og útfæra þær sjónrænt til þess að fá betri tilfinningu fyrir því sem þau eru að vinna með. Að því loknu velja þau hugmyndir sem þau vinna með á mælikvarða, þar sem raunstærðir og hlutföll eru skoðuð. Í kjölfarið útbúa þau lítil módel sem kynnt verða dómnefnd.
