23. febrúar 2026
Háskóladagurinn 2026

Háskóladagurinn er árlegur viðburður sem verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar næstkomandi en þá gefst fólki færi á að kynna sér allt það fjölbreytta nám sem er í boði í öllum háskólum landsins.
Háskóladagurinn verður að þessu sinni á eftirfarandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 12:00-15:00:
- Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1
– Auk Háskólans í Reykjavík munu Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst og Listaháskólinn kynna sínar námsleiðir þar. - Listaháskóla Íslands, Stakkahlíð 1
– Auk Listaháskólans munu Háskólinn á Bifröst og Landbúnaðarháskólinn kynna sínar námsleiðir í Stakkahlíð. - Háskóla Íslands á Sögu, Háskólatorgi og í Öskju
– Auk Háskóla Íslands munu Háskólinn á Hólum kynna sínar námsleiðir á Háskólatorgi. Háskólinn á Bifröst, Listaháskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn og Háskólinn á Akureyri munu kynna sínar námsleiðir í Sögu.
Hopp býður upp á fríar ferðir á háskóladaginn ef lagt er á hoppstæði við Háskólana.
Dagsetningar framundan
Allir háskólar landsins kynna nám sitt á eftirfarandi stöðum utan höfuðborgarsvæðis:
Vestmannaeyjar 3. mars kl. 12:00-13:00
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Dalvegur 9, Vestmannaeyjar
Ísafjörður 5. mars kl. 12:00-13:30
- Menntaskólinn á Ísafirði, Torfsnes, Ísafjörður
Akureyri 11. mars kl. 11:00-13:00
- Háskólinn á Akureyri, Norðurslóð 2, 600 Akureyri