Hönnunarsamkeppni Tækniskólans og BYKO

Tvær deildir innan Tækniskólans taka þátt í samstarfsverkefni Tækniskólans og BYKO sem snýr að því að hanna og byggja saunaklefa fyrir stórsýninguna Verk og vit sem verður haldin í Laugardalshöll dagana 19.-22. mars.
Verkefnið hófst á hönnunarsamkeppni þar sem fimm hópar, alls 22 nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut, kynntu sérhannaða saunaklefa fyrir dómnefnd skipaða fulltrúum Tækniskólans og BYKO.
Dómnefndina skipuðu þau Ari Jónsson, kennari á hönnunar- og nýsköpunarbraut, Sandra Borg Gunnarsdóttir, skólastjóri Hönnunar- og handverksskólans, Gunnar Kjartansson, skólastjóri Byggingatækniskólans, Kjartan Long, verkefnastjóri BYKO, Renzo Gústaf Pazzaro, verslunarstjóri BYKO timbursölu og Sigurður Pálsson forstjóri BYKO.
Kynntu sér sögu saunaklefa

Nemendurnir hófu ferlið á því að kynna sér sögu saunaklefa og fengu kynningu á verkferlum og byggingu saunaklefa frá BYKO. Í kjölfarið sóttu hóparnir sér innblástur ýmist í íslenska náttúru, gamlar hefðir í saunamenningu og annað sem vakti áhuga þeirra. Þau teiknuðu síðan upp hugmyndir að saunaklefum og útfærðu að lokum módel af tillögunum.
Nemendurnir unnu jafnframt áhugaverðar kynningar á verkum sínum þar sem þau fóru yfir innblástur, ferlið og hönnunina sjálfa.
Verkefnið reyndist því krefjandi fyrir dómnefnd sem fór gaumgæfilega yfir allar tillögurnar.
Að lokum var það hópur 2, sem samanstóð af þeim Matthildi Ingadóttur, Hörpu Hua Zi Tómasdóttur og Svandísi Halldórsdóttur, sem sigraði samkeppnina. Hönnun þeirra var mínimalísk og skemmtileg, með áherslu á útsýni og notagildi.
Í hönnunarferlinu ráðfærðu þær sig við fólk sem stundar gufu og nýttu sér ráðleggingar til þess til að útfæra hönnunina sem best. Bekkirnir eru breiðir með möguleika á að liggja á og lítill pallur að utanverðu gerir fólki kleift að standa úti í skjóli.
Mikil sköpun í hverju verki
Sigurður Pálsson, forstjóri BYKO, hitti nemendurna föstudaginn 30. janúar og spjallaði við þau um verkefnið og þakkaði fyrir vel unnar og vandaðar tillögur. Þá er einnig vert að segja frá því að Sigurður er sjálfur nemandi við Meistaraskóla Tækniskólans, þar sem hann er að ljúka meistaranámi í húsasmíði.
Sigurður sagði hvert verkefni einkennast af mikilli vinnu og sköpun.
„Það var líka mjög gaman að sjá hvað innblásturinn kom úr ólíkum áttum. Hér er augljóslega mikill sköpunarkraftur, “ sagði hann.
Sigurður sagði vandasamt verk að velja sigurtillöguna enda hefði hver sauna sína sérstöðu. Saunana sem var að lokum valin sagði hann hafa passað vel fyrir þarfir viðskiptavina BYKO og einnig að hún hentaði sérstaklega vel íslenskum markaði almennt.
„Það sem gerir saununa sérstaka og aðgreinir hana frá hefðbundnum saunum eru bogadregnar línur að innan. Boginn gerir hana mjög skemmtilega og þessi litli díteill nær að brjóta upp bygginguna. Skjólveggurinn hentar einnig íslensku veðurfari sérstaklega vel og gefur húsinu sérstöðu.“
Tækniteiknarar á vegum Tækniskólans munu nú teikna upp módelið sem verður sent til BYKO í Lettlandi, þar sem einingar verða smíðaðar og fluttar til Íslands.
Að lokum mun Byggingatæknideild Tækniskólans smíða saunaklefann á sýningunni í Laugardalshöll dagana 19.-22. mars.



