Menu

Fréttir

04. mars 2026

Hönnunarverkefni nemenda til sýnis

Módelin eru unnin úr þrívíddarprentuðu plasti eða pappa.

Nemendur á starfsbraut Tækniskólans hopnað skemmtilega sýningu á bókasafni skólans í Hafnarfirði þar sem afrakstur hönnunaráfanga er til sýnis.

Á undanförnum mánuðum hafa nemendurnir byggt fjölbreytt og skemmtileg módel af húsum og öðru áhugaverðu sem þau teiknuðu upp og byggðu síðan í framtíðarstofu Tækniskólans. Módelin eru ýmist unnin úr þrívíddarprentuðu plasti eða pappa.

Markmið áfangans eru að nemendur kynnist hugmyndafræði hönnunarferlisins og þrói hugmyndirnar sínar frá teikningu til fullunnins verks.

Útkoman er afar fjölbreytt en sumir nemendur hafa byggt módel af eigin æskuheimili, aðrir hafa endurskapað þekkt hús úr sjónvarpsseríunni The Simpsons, en einnig má sjá burstabæ og hesthús. Einn nemandi valdi að teikna og þrívíddarprenta Big Ben en tveir aðrir byggðu hjálma í raunstærð úr tölvuleikjum.

Að sögn Ásdísar Sólbráðar, kennara, hefur áfanginn verið einstaklega skemmtilegur og áhugi nemenda á verkefninu mikill.

„Mér finnst svo mikil forréttindi að fá að kenna hérna. Nemendur eru  öll einbeitt að verkefnunum og sýna mikla nákvæmni í vinnunni. Þetta eru verkefni sem hægt er að þróa áfram og ég hlakka mikið til að halda áfram að vinna í þessu skemmtilega verkefni á næstu spönn.“

Kennarar áfangans eru þær Áslaug Sólbráð Elísa Ásmundsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir.

Módel nemendanna verða til til sýnis á bókasafni Tækniskólans í Hafnarfirði til 13. mars næstkomandi og öll velkomin að skoða afraksturinn.