Menu

Fréttir

20. maí 2026

Hugmyndir lifna við í þrívídd

Tómas Ingi Victorron gerði líkan að Erpsstöðum. Hann vinnur á Erpsstöðum og verður líkanið þar til sýnis.

Nemendur á starfsbraut Tækniskólans sýndu nýverið afrakstur verkefnavinnu síðustu spannar sem einkenndist af skapandi hugsun og verklegri nálgun. Verkefnin voru unnin í framtíðarstofu skólans í Hafnarfirði og fólust meðal annars í hönnun og gerð líkana með þrívíddarprentun og öðrum fjölbreyttum efnivið. Á sýningunni mátti meðal annars sjá fantasíuhús, draumahús og eftirminnileg hús ásamt skemmtilegum fígúrum sem nemendur höfðu skapað út frá eigin hugmyndum og áhugasviðum.

Stærðfræði og skapandi hugsun

Verkefnin voru að miklu leyti frjáls og mátti sjá fjölbreyttar áherslur og áhugamál nemenda skína í gegn. Sumir nemendur hönnuðu og teiknuðu eigin byggingar á meðan aðrir unnu með þekktar fígúrur og hús meðal annars úr tölvuleikjum og bíómyndum. Nemendurnir unnu með mismunandi áferðir í landslagi og smáatriði til þess að skapa heildstæðara umhverfi í kringum módelin.

Bjartur Ingi hannaði framtíðarbyggingu.

Áfanginn er bæði skapandi og verklegur og leggja þær Elísabet Stefánsdóttir og Áslaug Ásmundsdóttir kennarar áfangans áherslu á að nemendur fái að vinna með persónuleg áhugasvið sín í verkefninu. Útkoman var því fjölbreytt sýning þar sem hús, fígúrur og ólíkar hugmyndir fengu að njóta sín.

„Áfanginn gekk mjög vel. Nemendurnir teikna öll eitthvað og nálgast verkefnin á ólíkan hátt. Það er sérstaklega skemmtilegt þegar þau hanna og teikna sjálf hugmyndir frá grunni, en sum hafa hreinlega meiri áhuga á handavinnunni og einbeita sér þá meira að smáatriðum og sérstökum útfærslum líkananna,“ segir Áslaug sem er ákaflega stolt af afrakstrinum.

Hún segir mikilvægt að mæta nemendum þar sem þeirra áhugi liggur.

„Þau byrja á nokkrum skylduverkefnum og út frá þeirri vinnu reynum við að lesa í áhugasvið hvers og eins og vinna áfram út frá því.“

Áfanginn er eins konar blanda af stærðfræði og skapandi hugsun þar sem nemendur þurfa meðal annars að reikna út stærðir og hlutföll svo allt passi saman í uppbyggingu líkananna. Með því fá nemendur tækifæri til að sameina skapandi vinnu, verklega færni og lausnamiðaða hugsun í sama verkefninu.