07. desember 2024
Húsgagna- og húsasmíðasýning

Húsgagna- og húsasmíðasýning útskriftarnema í húsgagnasmíði og húsasmíði verður haldin 12. og 13. desember í trésmíðadeild Tækniskólans.
Þar verða til sýnis lokaverkefni útskriftarnema ásamt fleiri verkum.
Opnunartími:
- Fimmtudaginn 12. desember kl. 11:00–18:00
- Föstudaginn 13. desember kl. 11:00–18:00
Þetta er kjörið tækifæri til kynna sér handverk nemenda og námið í trésmíðadeild Byggingatækniskólans.
Verið hjartanlega velkomin á Skólavörðuholtið!