Hvað er EKKO?
Dagur gegn einelti er haldinn árlega þann 8. nóvember. Markmið dagsins eru m.a. að efna til umræðu og viðburða til að efla vináttu, hvetja til jákvæðra samskipta og vinna gegn einelti. Dagur gegn einelti er frábær dagur til þess að minna okkur á að einelti kemur öllum við, börnum jafnt sem fullorðnum.
EKKO stefna Tækniskólans

Að þessu tilefni viljum við vekja athygli á stefnu Tækniskólans gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi.
Stefna Tækniskólans er skýr: Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni, ofbeldi og óviðeigandi hegðun er ekki liðin.
Í skólanum er lögð áhersla á að efla vitund starfsfólks og nemenda um mikilvægi jákvæðra samskipta og gera þau einkennandi í skólasamfélaginu. Skólinn leitar allra ráða til að fyrirbyggja og leysa þau mál sem upp koma á sem farsælastan hátt.
Við hvetjum nemendur og starfsfólk til þess að standa saman gegn ofbeldi og einelti. Sýnum ALÚÐ og umhyggju í samskiptum.
Þarftu stuðning?
Ef þú verður fyrir einelti, áreitni og/eða ofbeldi innan skólans eða á viðburði á vegum skólans skalt þú leita til einhverra eftirtalinna aðila:
- Þú getur tilkynnt málið gegnum tilkynningarhnapp á vefsíðu skólans
- Náms- og starfsráðgjafa
- Sálfræðings skólans
- Annars starfsmanns sem kemur boðum til réttra aðila.
Á upplýsingasíðu skólans um einelti, áreit og ofbeldi má einnig finna spurningar og svör um einelti, áreiti og ofbeldi ásamt fleiri upplýsingum.