05. desember 2021
Innritun í dagskóla
Dagskóli
Við vekjum athygli á því að innritun í dagskóla á vorönn 2022 lýkur þann 30. nóvember. Sótt er um á innritunarvef Menntamálastofnunar og hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar þar.
Umsóknir í dagskóla sem berast eftir 30. nóvember fara á biðlista um skólavist.
Nám með vinnu
Opið er fyrir innritun í nám með vinnu/dreifnám frá 1. nóvember 2021 og henni lýkur þegar hópar fyllast.
Nám í boði
Tækniskólinn býður upp á fjölbreyttar námsbrautir og inn á hverri brautarsíðu er að finna upplýsingar um inntökuskilyrði og leið inn á innritunarvef.