13. mars 2025
Innritun á haustönn 2025

Innritun nemenda í dag- og dreifnám á haustönn 2025 verður sem hér segir:
- Innritun nemenda í dagskóla hefst 18. mars og stendur til 31. maí.
- Innritun í dreifnám hefst 18. mars og stendur til 31. maí.
- Innritun í framhaldsnám hefst 18. mars nema annað sé tekið fram á viðkomandi brautarsíðu.
- Innritun nemenda úr 10. bekk hefst hefst 25. apríl og stendur til 10. júní.
Umsóknir sem berast eftir að innritun lýkur fara á biðlista um skólavist.
Tækniskólinn býður upp á fjölbreyttar námsbrautir og inn á hverri brautarsíðu má finna upplýsingar um inntökuskilyrði og hvenær námið er í boði.
Hér má sjá nánari upplýsingar um innritun í Tækniskólann.