28. október 2024
Innritun í Tækniskólann

Innritun nemenda í dag- og dreifnám á vorönn 2025 verður sem hér segir:
- Innritun nemenda í dagskóla hefst 29. október og stendur til 1. desember 2024.
- Innritun í dreifnám hefst 29. október og stendur til 22. nóvember 2024.
- Innritun í framhaldsnám hefst 29. október nema annað sé tekið fram á viðkomandi brautarsíðu.
Umsóknir sem berast eftir að innritun lýkur fara á biðlista um skólavist.
Tækniskólinn býður upp á fjölbreyttar námsbrautir og inn á hverri brautarsíðu má finna upplýsingar um inntökuskilyrði og hvenær námið er í boði.
Hér má sjá nánari upplýsingar um innritun í Tækniskólann.