13. mars 2026
Innritun haustönn 2026

Tækniskólinn býður upp á fjölbreyttar námsbrautir og inn á hverri brautarsíðu má finna upplýsingar um inntökuskilyrði og hvenær námið er í boði.
Innritun nemenda í dag- og dreifnám á haustönn 2026 verður sem hér segir:
- Innritun nemenda í dagskóla hefst 13. mars og stendur til 26. maí 2026.
- Innritun í dreifnám hefst 13. mars og stendur til 3. maí 2026.
- Innritun í framhaldsnám hefst 13. mars nema annað sé tekið fram á viðkomandi brautarsíðu.
- Innritun nemenda úr 10. bekk hefst hefst 24. apríl og stendur til 10. júní 2026.
Umsóknir sem berast eftir að innritun lýkur fara á biðlista um skólavist.
Hér má sjá nánari upplýsingar um innritun í Tækniskólann.