Menu

Fréttir

25. mars 2025

Íslandsmeistarar Tækniskólans

Íslandsmót iðn- og verkgreina fór fram í Laugardalshöll dagana 13.–15. mars.

Tækniskólinn kynnti námsframboð sitt á kynningarbásum þar sem gestum gafst kostur á að prófa gröfuhermi, suðuhermi, siglingahermi, vélmenni og spreyta sig í hárgreiðslu. Auk þess voru fulltrúar skólans til staðar á fjölmörgum keppnisbásum þar sem gestir gátu tekið þátt í verklegum verkefnum undir handleiðslu fagfólks.

Á Íslandsmótinu tókust keppendur á við raunhæf og krefjandi verkefni sem gerðu miklar kröfur um fagmennsku, útsjónarsemi og skipulagshæfileika. Sigur á mótinu veitir keppendum tækifæri til að taka þátt í EuroSkills, sem næst fer fram í Herning, Danmörku, í september 2025.

EuroSkills er haldið af samtökunum WorldSkills Europe og er mikilvægur vettvangur til að kynna íslenska iðn- og verkgreinaþekkingu á alþjóðavettvangi, auk þess sem keppnin stuðlar að því að efla gæði starfsmenntunar í Evrópu.

Um sextíu nemendur frá Tækniskólanum kepptu á mótinu. Öll stóðu þau sig með glæsibrag og var það mat dómara að hver og einn keppandi hafi sýnt einstaka hæfni. Við óskum öllum keppendum á mótinu innilega til hamingju með þátttökuna og árangurinn.


Nýkrýndir Íslandsmeistarar Tækniskólans 2025:

  • Fataiðn – Lilja Karen Kristinsdóttir

  • Grafísk miðlun – Jakob Bjarni Ingason

  • Gull- og silfursmíði – Helgi Líndal Elíasson

  • Hársnyrtiiðn – Bryndís Sigurjónsdóttir

  • Húsasmíði – Hans Haraldsson

  • Málaraiðn – Guðjón Granz

  • Málmsuða – Sigfús Björgvin Hilmarsson

  • Múraraiðn – Guðjón Elfar Jónsson

  • Pípulagnir – Þorgeir Snær Gíslason

  • Vefþróun – Edda Falak, Fannar Hrafn Jack Hilmarsson og Hélene N. B. Delaunay

  • Veggfóðrun og dúkalögn – Patrekur Guðni Þorbergsson