Júlía Rós sigraði söngkeppni Tækniskólans
Júlía Rós Kristinsdóttir, nemandi á hönnunar- og nýsköpunarbraut, sigraði söngkeppni Tækniskólans, Átótjúnið, sem fram fór miðvikudaginn 21. janúar í Mengi.
Júla Rós, sem er 16 ára gömul, hefur alltaf haft mikinn áhuga á söng og hefur stundað nám í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar í tæp tvö ár.
„Ég hef alltaf elskað að vera á sviði og koma fram, hvort sem það er í tengslum við leiklist, söng eða að syngja í kór,“ segir hún.
Júlía segir tilfinninguna að sigra Átótjúnið hafa verið frábæra.
„Það var bæði stórkostlegt að taka þátt og æðislegt að komast að því að ég hafi sigrað keppnina.“
Júlía flutti lagið Still loving you eftir Scorpions. Hún segist hafa haldið upp á lagið í töluverðan tíma og því hafi verið auðvelt að ákveða hvaða lag hún ætlaði að flytja á Átótjúninu.
„Ég er búin að vinna með þetta lag lengi. Ég heyrði það fyrst fyrir ári síðan og fannst þetta svo geggjað lag að prófaði að taka það í söngtíma.“
Aðspurð hvort hún ætli að reyna fyrir sér frekar í tónlist í framtíðinni segir Júlía það enn þá óráðið og ætlar hún einfaldlega sjá hvað framtíðin beri í skauti sér.
Júlía Rós verður fulltrúi Tækniskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram laugardaginn 11. apríl í Háskólabíói. Aðspurð hvernig sú keppni leggist í hana svarar hún:
„Það er mjög stressandi en ég er ógeðslega spennt.“
Alls tóku 12 nemendur þátt í keppninni og stóðu þau sig öll með miklum sóma.
Í öðru sæti hafnaði Yiannis Voulgarakis, nemandi á hljóðtæknibraut, sem flutti lagið My life með Imagine Dragons og í þriðja sæti var Helga Lilja Eyþórsdóttir, nemandi á tölvubraut, sem flutti lagið lagið Maybe This Time úr söngleiknum Cabaret.
Dómnefnd skipuðu þau Ólafur Páll Gunnarsson, Klara Einarsdóttir og Brynja Gísladóttir, nemandi á málarabraut og sigurvegari í söngkeppni Tækniskólans 2025.
