Menu

Fréttir

16. febrúar 2024

Komdu í heimsókn

Við viljum benda á þá fjölbreyttu viðburði sem framundan eru í Tækniskólanum.

Í febrúar bjóðum við upp á námskeið og keppni í forritun, Skrúfudagurinn verður haldinn hátíðlegur 16. mars og gestir eru boðnir velkomnir á opið hús skólans miðvikudaginn 20. mars.

 

Forritunarkeppni grunnskólanna

Nemendum í 9. og 10. bekk er boðið á frítt námskeið í forritun og að taka þátt í forritunarkeppni.

Forritunarámskeið
Námskeið fyrir byrjendur fer fram í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi laugardaginn 17. febrúar kl. 10:00–16:00.

Forritunarkeppni
Keppnin verður haldin í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi laugardaginn 24. febrúar kl. 12:30–17:00.

Tölvubraut Tækniskólans stendur fyrir keppninni og er markmið hennar að kynna forritun fyrir grunnskólanemendum og skapa vettvang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verkefni.

Nánari upplýsingar og skráningarhlekkur birtast inn á kodun.is von bráðar.

 

Skrúfudagurinn

Árlegur kynningardagur nemenda í vélstjórn og skipstjórn, Skrúfudagurinn, verður haldinn hátíðlegur laug­ar­daginn 16. mars.

Þetta er skemmti­legur viðburður sem hentar ungum sem öldnum og það er sér­stak­lega skemmti­legt fyrir fyrrum nem­endur við skólann að taka þátt og rifja upp gamla tíma.

Ítarlegri dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

 

Opið hús

Opið hús verður haldið í Tækniskólanum miðvikudaginn 20. mars á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði.

Nem­endur og starfs­fólk taka vel á móti gestum og gang­andi sem geta kynnt sér náms­framboð, félagslíf og aðstöðu í Tækni­skól­anum.

Ítarlegri dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

 

Við tökum vel á móti þér!