Kosningar NST
Nú líður að kosningum til stjórna í hinum ýmsu félögum innan Nemendasambands Tækniskólans, ásamt kosningu til miðstjórnar sambandsins.
Allir sem hafa áhuga á að láta til sín taka í félagslífinu í Tækniskólanum eru hvattir til þess að bjóða sig fram í eftirfarandi stöður
Miðstjórn Nemendasambands Tækniskólans (NST)
- Formaður
- Varaformaður
- Ritari
- Fulltrúi nýnema (verður að vera nýnemi)
- Fulltrúi nemenda í Hafnarfirði (verður að vera nemandi úr Tækniskólanum í Hafnarfirði)
Skólafélag Tæknimenntaskólans (NTM)
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum eftir kosningar
Skólafélag Upplýsingatækniskólans (Eniac)
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum eftir kosningar
Skólafélag Byggingartækniskólans
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum eftir kosningar
Skólafélag Raftækniskólans (SRS)
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum eftir kosningar
Skólafélag Hönnunar- og Handverksskólans (NTM)
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum eftir kosningar
Nemendaráð Tækniskólans í Hafnarfirði
- Boðið er fram í stjórn sem skiptir með sér verkum.
Framboð og fyrirspurnir skulu berast á netfangið [email protected] fyrir lok dags 11. september. Kosningar fara fram á innu dagana 25. – 29. september.
Kynningar á frambjóðendum fara fram á vef nemendasambandsins, www.nst.is