Kvikmyndalæsi og heimildamyndagerð
Nemendum Tækniskólans býðst einstakt tækifæri á vorönn 2026 um þátttöku í valáföngum í kvikmyndalæsi og heimildamyndagerð. Um er að ræða 5 eininga áfanga sem kenndir verða yfir alla önnina.
Leikstjórinn Ari Allansson, sem jafnframt er doktor í kvikmyndafræðum, mun kenna áfangana tvo. Kennsla mun fara fram í Tækniskólanum á Háteigsvegi.
Kvikmyndalæsi: mánudaga klukkan 16:15-18:00
Heimildamyndagerð: föstudaga klukkan 12:45-14:30
Auk þess verða vinnustofur sem verða skipulagðar í samráði við nemendur
Nánari lýsingu má lesa hér að neðan.
Í kvikmyndalæsi er lögð áhersla á að efla skilning nemenda á kvikmyndum sem listgrein og menningarformi. Farið er yfir helstu hugtök kvikmyndalæsis, þar á meðal uppbyggingu frásagnar, myndmál, klippingu ásamt hljóðvinnslu og tónlist.Nemendur læra að greina kvikmyndir út frá listrænu gildi, samfélagslegu samhengi og áhrifum á áhorfendur. Markmiðið er m.a. að þjálfa nemendur í gagnrýninni og meðvitaðri áhorfshæfni. Að veita innsýn í sögulegt og menningarlegt hlutverk kvikmynda, efla hæfni til að tjá skoðanir og rökstyðja greiningu á kvikmyndum.
Í heimildamyndagerð er persónuleg nálgun. Lögð er áhersla á skapandi vinnu með heimildarefni þar sem persónuleg sýn nemenda er í forgrunni. Nemendur læra að þróa hugmyndir sem byggja á eigin reynslu, áhuga og forvitni. Skoðaðar eru mismunandi leiðir til að segja sögur í heimildamynd, jafnt með myndum, hljóðum sem frásögn, og hvernig nærvera kvikmyndagerðarmannsins getur haft áhrif á útkomuna. Markmiðið er m.a. að efla meðvitund um eigið sjónarhorn og rödd í heimildamyndagerð. Að kynnast fjölbreyttum stílum og nálgunum innan heimildamynda. Auk þess að þróa persónulegt verkefni frá hugmynd til frumgerðar.
Gert er ráð fyrir að fyrstu tímar verði föstudaginn 16. janúar og mánudaginn 19. janúar.
Hafir þú áhuga á að skrá þig í annan hvorn áfangann- eða báða tvo – má senda tölvupóst á netfangið [email protected]