14. janúar 2019
Kynningarfundur fyrir nýnema

Þriðjudaginn 15. febrúar verður kynningarfundur fyrir nýnema og foreldra/forráðamenn í matsal skólans á Skólavörðuholti. Á fundinum verður farið yfir ýmis atriði sem mikilvægt er að vita m.a.
upplýsingar um stoðþjónustu, félagslíf og Innu. Kynning hefst klukkan 17.30 og tekur um eina klukkustund.
Dagskrá
– Kynning á Tækniskólanum
- Hildur Ingvarsdóttir skólameistari
– Inna – upplýsingakerfi framhaldsskólanna
- Guðrún Randalín aðstoðarskólameistari
– Stoðþjónusta fyrir nemendur og forvarnarstarf
- Þórdís Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi
- Benedikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur
- Guðlaug Kjartansdóttir forvarnarfulltrúi
– Félagslíf og viðburðir
- Þorvaldur Guðjónsson félagsmálafulltrúi
Kaffi, kleinur, ávextir og sódavatn verða á boðstólnum.
Allir nýnemar og foreldrar/forráðamenn eru hjartanlega velkomin.