Menu

Fréttir

06. mars 2026

Leikfélagið frumsýnir Þriðjudags þristinn

Leikfélag Tækniskólans, Mars, frumsýnir leikritið Þriðjudags þristurinn fimmtudaginn 12. mars næstkomandi í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg. Verkið er frumsamið og að uppsetningunni koma 20 nemendur standa að baki skapandi og skemmtilegri sýningu.
Snæfríður Sól leiddi hópinn í spuna.

Leikstjóri sýningarinnar er Snæfríður Gunnardóttir, sem lauk meistaragráðu í leikshúsleikstjórn frá Prag og hefur undanfarin ár leikstýrt í leikhúsi, kvikmyndum og í myndböndum. Þriðjudags þristurinn er frumsamið verk þar sem Snæfríður leiddi nemendahópinn í gegnum svokallaða samsköpun.

„Við erum búin að vinna hörðum höndum að því að búa til þessa sýningu. Þetta er frumsamið af hópnum og við unnum verkið í því sem er kallað samsköpun, einskonar spuni. Við komumst fljótt að því í hvaða átt við vildum fara, sem sagt áhorfendur mæta eins og þau séu að mæta í upptöku á spjallþætti,“ útskýrir Snæfríður.

Hvað gæti farið úrskeiðis?

Miðasala er hafin á sýninguna.
Miðasala er hafin á sýninguna.

Út frá því ferli hófst karaktersköpun þar sem hópurinn velti fyrir sér hvaða persónur ættu heima í spjallaþáttum, hverjar ættu ekki heima þar og svo hvað gæti mögulega farið úrskeiðis í þessum aðstæðum. Í kjölfarið skrifaði Snæfríður handritið sem byggir alfarið á spuna og sköpun hópsins.

Undirbúninginn hefur gengið einstaklega vel að sögn Snæfríðar.

„Ferlið gekk mjög vel og það fæddust hugmyndir sem mér hefði aldrei dottið í hug sjálfri. Þau halda alltaf áfram að koma mér að óvart, ef ég lendi á vegg með ákvarðanir þá eru þau alltaf með frábærar lausnir og svör.“

Snæfríður sérhæfði sig í samsköpun í meistaranámi sínu og hefur unnið með spuna í uppsetningum með ungu fólki áður. Hún segir það sérstaklega gefandi að vinna með unglingum í slíku ferli þar sem hugmyndasköpun og frumleiki fær að njóta sín.

Aðspurð við hverju áhorfendur megi búast segir hún einfaldlega:

„Kaos, hlátur og óvænt útspil.“

Þriðjudags þristurinn er frumsýndur 12. mars

Miðasala