Menu

Fréttir

16. september 2025

Hygge í Herning

Forseti tók á móti keppendum

Evrópumót iðn- og verkgreina, eða Euroskills, er keppni sem haldin hefur verið frá árinu 2008 og fer mótið fram að jafnaði annað hvert ár. Landslið frá fjölmörgum Evrópuþjóðum mætast á þessum einstaka viðburði og keppa í sinni faggrein. Dómarar meta færni út frá handverki, hraða og natni. Að þessu sinni fór keppnin fram í Herning í Danmörku og tóku rúmlega 600 keppendur þátt í 38 ólíkum keppnisgreinum.

Í tilefni af heimkomu landsliðs Íslands í iðn- og verkgreinum bauð forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, til sérstakrar móttöku á Bessastöðum. Forsetinn lofaði árangur landsliðsins og sagði þau hafa verið landi og þjóð til sóma. Auk keppenda voru þjálfarar og sérfræðingar sem tóku þátt í mótinu saman komin á Bessastöðum. Gleði og samheldni einkenndi andrúmsloftið á meðal gesta og það var sérstaklega ánægjulegt að sjá vinahug landsliðsins.

 

Metfjöldi keppenda frá Íslandi

Alls voru þrettán íslenskir keppendur mættir til Herning og voru sex af þeim nemendur eða fyrrum nemendum Tækniskólans.

Það var ótrúlega góð stemmning í hópnum og þau voru bara öll til fyrirmyndar. Ég er virkilega stolt af þessu landsliði. Ekki bara nemendum Tækniskólans, heldur af öllum keppendum, þau landi og þjóð til sóma.

Auk keppenda á mótinu voru fjórtán íslenskir expertar sem tóku þátt í mótinu, ýmist sem þjálfarar keppenda, eða dómarar í keppninni. Margir þjálfarar hafa staðið í ströngum æfingum með keppendum fyrir mótið. En til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Euroskills þurfa keppendur að hafa sýnt framúrskarandi árangur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Einnig þurfa keppendur að vera undir 25 ára aldri.

 

Keppendur Tækniskólans unnu til verðlauna

Hildur Magnúsdóttir Eirúnardóttir keppti í málaraiðn á EUROSKILLS. Að sögn þjálfara Hildar, Halldórs Benjamíns kennari á málarabraut, stóð Hildur sig með mikilli prýði. Það kom svo á daginn að Hildur hlaut sérstök verðlaun fyrir hispurslausa vinnu við sitt verkefni. Einskonar hraðaverðlaun.

Keppandi Íslands í iðnaðarrafmagni, Gunnar Guðmundsson, vann til bronsverðlauna í sinni keppnisgrein. Hann hlaut 719 stig í keppninni. Annar varð Martin Riegler frá Austurríki með 721 stig en Philip Svensson frá Svíþjóð hlaut gullverðlaun með 737 stig.

Keppendur Íslands á Euroskills voru:

  • Málmsuða: Sigfús Björgvin Hilmarsson
  • Pípulagnir: Ezekiel Jakob Hanssen
  • Rafeindavirkjun: Einar Örn Ásgeirsson
  • Rafvirkjun: Daniel Francisco Ferreira
  • Iðnaðarstýringar: Gunnar Guðmundsson
  • Húsasmíði: Freyja Lubina Friðriksdóttir
  • Matreiðsla: Andrés Björgvinsson
  • Framreiðsla: Daníel Árni Sverrisson
  • Grafísk miðlun: Jakob Bjarni Ingason
  • Bakari: Guðrún Erla Guðjónsdóttir
  • Hársnyrtiiðn: Bryndís Sigurjónsdóttir
  • Málaraiðn: Hildur Magnúsdóttir
  • Bifvélavirkjun: Adam Stefánsson

Við óskum öllum hópnum til hamingju með frábæran árangur!