Menntun til sjálfbærni
K2 á alþjóðegri ungmennaráðstefnu
Fjórir nemendur á fyrsta ári á K2 Tækni- og vísindaleið tóku þátt í alþjóðlegri ungmennaráðstefnu um menntun til sjálfbærni í Varmalandi í Borgarfirði dagana 1.–3. nóvember.
Ráðstefnan var haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, Rannís og Samfés og tóku 65 ungmenni á aldrinum 16–25 ára þátt.
Á dagskránni voru meðal annars erindi um það hvernig ungt fólk getur brugðist við áskorunum samtímans og framtíðar á valdeflandi og skapandi hátt. Nemendur tóku þátt í hakkaþoni þar sem þeir unnu með raunhæf verkefni og á brautin fulltrúa í sigurliðinu.
Ráðstefnunni lauk á skrifstofu Mennta- og barnamálaráðuneytisins þar sem hópnum gafst færi á að greina frá niðurstöðum vinnu sinnar.
Leiðtogafundur í Hörpu
Í framhaldi ráðstefnunnar fékk K2 boð um að senda nemendahóp á leiðtogafund ungs fólks sem haldinn er í Hörpu dagana 24. og 25. nóvember. Viðburðurinn er hluti af formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og taka börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt.
Leiðtogafundur ungs fólks er samráðs- og samtalsvettvangur barna og ungmenna um málefni er varðar þau sjálf. Meginmarkmið leiðtogafundar er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til þess að hittast, ræða saman og mynda aðgerðir í þeirra málefnum sem afhentar verða Norrænu ráðherranefndinni ásamt ráðamönnum í hverju landi fyrir sig í lok fundarins.