Menu

Fréttir

26. febrúar 2026

Merkar heimildir um húsasmíði og eldsmíði

Atli Erlingsson, fagstjóri tréiðngreina, og Darri Hilmarsson, kennari, ásamt Kristínu.

Nýverið fékk Tækniskólinn þrjár einstakar bækur að gjöf frá Kristínu Sverrisdóttur, ekkju Gunnars Bjarnasonar húsasmíðameistara.

Bækurnar eru gefnar út í minningu Gunnars, sem var þekktur og viðurkenndur afbragðs fagmaður. Bókaflokkurinn er einstakt safn heimilda um þau merku verk sem Gunnar lét eftir sig, meðal annars á sviði húsaviðgerðar, eldsmíði og tilgátuhúsa.

Fyrsta bókin, Hinn taktfasti dans hamars á steðja, fjallar um eldsmíði sem Gunnar stundaði á seinni hluta starfsferils síns. Önnur bókin, Framtíð fyrir fortíð okkar, fjallar um húsaviðgerðir og viðhald eldri húsa. Þriðja bókin, Fornaldarsverð, segir frá fornaldarsverði sem Gunnar smíðaði um tvítugt. Þar er sérstaklega dregin fram nákvæmni hans í smáatriðum og vönduðum vinnubrögðum við gerð sverðsins.

Mikilvæg þekking

Upprunaleg gögn Gunnars voru afhent Húsasafni Þjóðminjasafns Íslands í nóvember á síðasta ári og verða þar aðgengileg fræðimönnum og öðrum áhugasömum.

Með gjöfinni fylgir sú von Kristínar að bækurnar nýtist í kennslu og stuðli að umræðu um ólík vinnubrögð, sem og mikilvægi þess að varðveita þekkingu á viðhaldi eldri húsa og umsýslu byggingararfs Íslendinga.

Bækurnar eru nú aðgengilegar nemendum Tækniskólans.