Metfjöldi nýnema innritast í Tækniskólann
Innritun nýnema úr grunnskóla í Tækniskólann fyrir komandi skólaár er nú lokið. Enn er verið að vinna úr umsóknum eldri nemenda og verður þeirri vinnu lokið á næstu dögum.
Alls bárust 1.068 umsóknir frá nemendum sem voru að útskrifast úr grunnskóla um nám við skólann. Þar af voru 451 með Tækniskólann sem fyrsta val, 443 sem annað val og 174 sem þriðja val.
Samtals munu 480 nýnemar, sem koma beint úr grunnskóla, hefja nám á fyrsta námsári í haust. Nemendurnir koma úr 67 grunnskólum víðs vegar af landinu.
Aldrei hafa eins margir nýnemar úr grunnskóla innritast í Tækniskólann, sem undirstrikar þann mikla áhuga sem er á námi við skólann.
Tækniskólinn býður nýnema velkomna í skólann og við hlökkum til að taka á móti þeim í upphafi haustannar.