Menu

Fréttir

07. desember 2023

Metnaðarfull verkefni í kynjafræði

Nemendur á námsbrautinni K2: tækni- og vísindaleið eru í þann mund að skila lokaverkefnum í áfanga sem ber heitið lokaverkefni. Um er að ræða lokaverkefni nemenda á 2. ári á K2 í kynja- og jafnréttisfræði í tengslum við samfélagið og með áherslu á að skoða það með kynjagleraugum. Kolbrún Kolbeinsdóttir kennir áfangann.
Nemendur eiga að tengja þekkingu í kynjafræði beint við veruleika sinn og samfélagið. Verkefnin fjalla m.a. um nauðgunarmenningu; hugmyndafræði Andrew Tate’s; vændi á Íslandi; karlmennsku og klámáhorf; hvað sé femínismi; hvernig Bechdel prófið nýtist til að skoða birtingarmyndir kvenna í kvikmyndum.

Við litum við í kennslustund hjá nemendum og tókum þau tali um námsefnið. Þar á meðal var Eva Rut, 17 ára nemandi á K2: tækni- og vísindaleið. Eva Rut er ánægð með að kynjafræði sé kennd í Tækniskólanum og hún hafi t.d. tekið eftir breytingu á samtölum nemenda, sem séu flestir strákar, þar sem brandarar um viðkvæm mál eins og kynferðisofbeldi heyri sögunni til. Hún finnur hvernig námsefnið er að hafa áhrif á viðhorf og atferli samnemenda. Eva Rut valdi umfjöllunarefni sem tengist nauðgunarmenningu og það er ljóst að hún leggur mikinn metnað í verkefnið.

Markmið mitt með þetta verkefni er að sýna fólk og fræða fólk um þetta alvarlega mál þar sem ég sjálf vissi ekki mikið um þetta. Þetta var eitthvað sem ég vildi að fólk myndi skilja og vita hvað ætti að gera í því og hvaða áhrif það hefur á fólk.

Nemendur í áfanganum geta skilað lokaverkefninu á margvíslegan máta t.d. í formi mynda, hlaðvarps, myndbands eða veggspjalds. Þeim er svo ætlað að kynna verkefnin á opnum fundi þar sem sérstök dómnefnd mun meta verkefnin til einkunnar. Eva Rut var að leggja lokahönd á sitt veggspjald þegar við ræddum við hana.

Ég bjó til plakat og fyrirmyndin var svolítið eins og „sjúkást“ plakötin sem voru alltaf í skólanum og ég var alltaf að sjá þegar ég var í grunnskóla, núna þegar ég geri þetta verkefni þá átta ég mig á því að við höfum verið að sjá þetta mjög víðar, og geri mér grein fyrir hvað þetta þýðir og hvað var verið að reyna að segja okkur.

Áhugi nemenda leyndi sér ekki þegar fulltrúar Tækniskólans heimsóttu þau og það verður áhugavert að sjá kynningarnar þeirra.

Til hamingju með flott verkefni!