Mikilvægt að gefast aldrei upp
Vinnustaðanám hjá rakarastofunni Herramönnum
Mikið líf og góð stemning var á rakarastofunni Herramönnum í Hamraborg í Kópavogi þegar við kíktum við til að hitta nemendur og meistara þeirra. Á stofunni eru núna þrír nemendur í vinnustaðanámi. Andri Týr, meistari og eigandi stofunnar, segir að það haldi honum á tánum að taka nema en sé jafnframt krefjandi verkefni meðfram rekstri stofunnar.




Stefán Valþórsson, einn nemanna, er núna í vinnustaðanámi og verður fram á haust. Hann stefnir að því að klára námið í skólanum næsta vetur.
Stefán segist ekki hafa vitað hvað hann langaði að gera, ákvað að prófa að sækja um í Tækniskólanum og hefur ekki litið til baka síðan.
Ég vissi í raun ekkert um hvað þetta snerist en heillaðist þegar ég byrjaði að skoða Tik tok og YOUTUBE. Mest sjokkerandi var hvað þetta lítur út fyrir að vera einfalt þar. Þegar á reynir er það alls ekki þannig.
Stefán segist hafa verið pínu stressaður fyrst og svolítið hrár, en þá sé betra að móta hann sem fagmann. Hann segist hafa leitast eftir vinnustaðanámi á stofu þar sem gott er að vera nemi og það eigi sannarlega við hjá Herramönnum.
Eiginlega allt er skemmtilegast, aðallega fjölbreytnin. Margir halda að þetta sé bara klipping en fagið er mjög fjölbreytt, alls konar kúnstir. Það er ótrúlega gaman að vera ekki fastur í einhverju einu. Það sem er kannski erfiðast er að halda haus gagnvart kúnnanum, t.d. ef ég næ ekki klippingunni og þarf að fá Andra til að koma og laga. Þetta er hluti af því að læra og það er mikilvægt að gefast aldrei upp. Þetta kemur einn daginn, þó að maður trúi stundum að þetta gangi ekki. Þetta er æfing.
Það var virkilega gaman að hitta nemana að störfum hjá Andra í þessu líflega umhverfi og greinilegt að nemendurnir fá góða þjálfun þar.