Menu

Fréttir

17. febrúar 2025

Morðingi gengur laus!

Leikritið Klú

Úti er snjóbylur, ekkert skyggni og mikil ókyrrð. Frú Páfugl, herra Sinnep, Frú Rauð, prófessor Plóma, herra Grænn og frú Hvít eru stödd á sveitahóteli. Á hótelinu hefur verið framið morð. En hver er morðinginn?

Leikfélagið MARS frumsýnir leikrit skólaársins föstudaginn 21. febrúar. Leikritið heitir Klú og er byggt á morðgátuspilinu Clue. Leikritið gerist á sveitahóteli árið 1954 þar sem gestir og starfsfólk lenda í óvæntri atburðarás.

 

Miðasala er hafin!

Miðaverð er 1.000 kr. og sæti eru ekki númeruð.

Sýn­ingar fara fram í Tækni­skólanum við Háteigsveg í Hátíðarsal skólans sem er á 2. hæð.

 

Leikstjóri MARS

Leik­stjóri leik­hópsins er Magnús Thorlacius. Magnús Thorlacius leikstjóri og skáld útskrifaðist af sviðshöfundabraut frá Listaháskóla Íslands árið 2022 og hefur síðan þá sett upp hin ýmsu verk. Má þar nefna leiksýninguna Skeljar sem var sýnd í Ásmundarsal, Lónið og Þöglar byltingar sem báðar voru sýndar í Tjarnarbíói.