Menu

Fréttir

15. janúar 2025

Námsumhverfi K2

Áhugavert námsrými

Haustið 2024 óskuðu Samtök áhugafólks um skólaþróun eftir myndum og lýsingum af áhugaverðu námsumhverfi. Alls bárust á annan tug lýsinga og meðal þeirra sem sendu framlag var Sigríður Halldóra Pálsdóttir brautarstjóri á K2: Tækni- og vísindaleið Tækniskólans.

Nafngiftin K2 vísar til næsthæsta fjalls heims og stendur fyrir áskorun og metnað. Brautin tók til starfa haustið 2016 eftir hugmyndavinnu og samstarf starfsfólks Tækniskólans og Háskólans í Reykjavík um skapandi leiðir í verkefnastýrðu námi tengt tækni og vísindum. Námsbrautinni er ætlað að höfða til nemenda sem kjósa óhefðbundið og óvenjulegt nám fremur en hefðbundna kennslu. Þeir fá tækifæri til að vinna með krefjandi verkefni, tengjast háskólaumhverfinu og efla tengslanet sitt.

Meginviðfangsefni á K2 er nám og skapandi kennsluhættir á sviði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar. Áhersla er lögð á samvinnu og samþættingu námsgreina sem er ætlað að gera nemandann áhugasaman um námið og námsumhverfi sitt og auka virkni, sjálfstæði og sjálfræði.

 

Rými sem örva sköp­un­ar­gáfuna

Sigríður Halldóra er sérlega ánægð með námsumhverfið sem brautin hefur upp á að bjóða:

Við erum stolt af því að hafa þróað námsrými sem býður nemendum upp á fjölbreyttar námsaðstæður, sem uppfylla bæði ólíkar námsþarfir þeirra og örva sköpunargáfuna. Stofurnar sem við höfum til umráða eru aðlaðandi og með stórum gluggum sem hleypa inn náttúrulegri birtu. Þær hafa verið skipulagðar með það fyrir augum að stuðla að námsvirkni nemenda, hvort sem þeir kjósa að vinna einir eða í hópum.

Námsumhverfið er mótað með litríkum og stundum óhefðbundnum innréttingum sem skapa ólíka möguleika fyrir nemendur til náms. Þeir geta lært á sínum eigin forsendum og notið þess að vera í umhverfi sem gleður augað, en á sama tíma eykur einbeitingu og vellíðan. Það er mikilvægt að nemendur upplifi að þeir eigi val og sveigjanleika í náminu, og rýmið okkar tekur tillit til þess á sem fjölbreyttastan hátt. Hönnun sem kemur til móts við ólíkar þarfir og námsstíla, hjálpar nemendum okkar að ná betri tökum á eigin námsframvindu og þátttöku í ólíkum námsgreinum.

Samkvæmt Sigríði hafa litir, húsgögn og aðrir innanstokksmunir verið vandlega valin til að ýta undir skapandi og virkt námsumhverfi. Eins hefur verið tekið tillit til margra þátta við skipulagninguna og telur hún rýmin vera kjörið dæmi um hvernig vel hannað námsrými getur haft jákvæð áhrif á nám og líðan nemenda.

Lesa má grein um framlagið í heild sinni í tímaritinu Skólaþráðum.