Menu

Fréttir

16. apríl 2024

Nemendur keppa við starfsfólk

Miðvikudaginn 17. apríl mun rafíþróttalið Tækniskólans keppa við lið FSU í úrslitum framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands (FRÍS). Keppnin verður í beinni útsendingu á Stöð2 ESPORT og hefjast leikar klukkan 19:30 stundvíslega.

Lið Tækniskólans ætlar að hita upp fyrir úrslitin með æfingaleik við lið sem er skipað starfsfólki skólans.

Keppt verður í Rocket League!

Hér er hlekkur á upphitunarkeppnina sem hefst kl. 12:00.