Menu

Fréttir

09. apríl 2026

Nemendur Tækniskólans verðlaunaðir á SVEF

 

Verðlaunagripur nemendanna.

Nemendur á tölvubraut Tækniskólans hlutu verðlaun fyrir nemendaverkefni ársins á Íslensku vefverðlaununum 2025, SVEF, sem haldin voru í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 26. mars sl.

Verðlaunahafarnir eru þeir Birgir Þór Birgisson, Marinó Franz Bjarnason, Gunnar Elías Davíðsson og Valdimar Einar Vífilsson. Verkefni þeirra heitir Pokédexdle og er Pokémon-innblásinn Wordle-leikur.

Að sögn Ellerts Smára Kristbergssonar, kennara við Tækniskólann, setti hann hópinn saman í verkefni á grundvelli styrkleika nemendanna. Úr varð hugmyndin að verkefninu sem hlaut að lokum viðurkenningu dómnefndar. Annar hópur frá Tækniskólanum samanstóð af þeim Kaju Sulima, Sahöru Rós Blandon og Ólafi Bjarka Guðmundssyni. Þau gerðu verkefnið Sagnabrunnur sem lenti í öðru sæti á vefverðlaununum sem er einnig frábær árangur.

Íslensku vefverðlaunin eru veitt af Samtökum vefiðnaðarins, SVEF, fagsamtökum þeirra sem starfa að vefmálum á Íslandi. Markmið samtakanna er að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni.

Nemendurnir eru ýmist að útskrifast í vor eða um jólin. Aðspurðir um framhaldið segjast Gunnar og Birgir stefna á frekara nám í tölvunarfæði í HR, Valdimar hyggist að halda áfram í Tækniskólanum í stafrænni hönnun og Marinó stefnir á flugnám erlendis.

Gunnar, Valdimar, Marinó og Birgir með verðlaunin.