Menu

Fréttir

24. mars 2026

Nemendur Tækniskólans í alþjóðlegri nýsköpunarkeppni

Tölvubraut Tækniskólans á Smart Green Island Makeathon 2026

Tíu nemendur og tveir kennarar frá tölvubraut Tækniskólans tóku þátt í Smart Green Island Makeathon sem fór fram dagana 24.-28. febrúar 2026 í Las Palmas á Kanaríeyjum. Viðburðurinn var skipulagður af ITQ GmbH og komu saman yfir 200 nemendur frá 30 löndum og 43 skólum. Ferðin var styrkt af Erasmus+.

Nemendur Tækniskólans unnu í alþjóðlegum teymum með kennurum og nemendum frá skólunum I.E.S. El Rincón í Las Palmas og BBS Jever í Þýskalandi. Þar sameinuðu nemendur með ólíkan bakgrunn krafta sína og þróuðu hugmyndir yfir í frumgerðir á skömmum tíma.

Þema ársins var „CirQmind – Circular Economy through Circular Society“, sem snéri að þróun sjálfbærra hringrásarlausna og betri nýtingu auðlinda með aðstoð nýjustu tækni. Markmiðið var að hanna og þróa bæði hugbúnaðar- og vélbúnaðarfrumgerðir frá grunni á aðeins fjórum dögum.

Samstarf skólanna snerist ekki einungis um forritun og smíði, heldur einnig um samskipti, samvinnu og lausnamiðaða hugsun. Á lokadegi viðburðarins kynnti teymið frumgerðir sínar á sviði.

Verkefni Tækniskólans, I.E.S. El Rincón og BBS Jever

Snjalltunna – Ruslatunna þar sem rusl er flokkað með notkun myndavél og vélnám. Vélbúnaður stýrir síðan ruslinu ofan í eitt af fjórum hólfum: plast, pappír, gler eða almennt sorp. Tunnan mælir einnig fyllingu og sendir upplýsingar yfir netið.

Vatnssóunarvaktari – Kerfið getur greint leka eða óþarfa vatnsrennsli, lokað sjálfkrafa fyrir krana og sent viðvaranir. Öll gögnin voru gerð sýnileg á sérstöku mælaborði til að auka meðvitund um vatnsnotkun.

Snjallgarður – Sjálfvirkt kerfi fyrir heimilisplöntur. Skynjarar vakta stanslaust birtustig, raka- og hitastig og út frá þeim gögnum stýrir kerfið bæði vökvun og lýsingu.

Ruslaflokkun – Vél

menni sem sér um að sópa flokkað rusl af stóru belti í rétt hólf. Þetta er gert með því að nýta myndavél og vélnám.

Þátttakan skilaði nemendum ekki aðeins aukinni tækniþekkingu, heldur einnig nýjum tengslum og dýrmætri reynslu af alþjóðlegu samstarfi sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni.

 

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr ferðinni.