04. febrúar 2024
Nýsveinahátíð 2024
Nýsveinar heiðraðir
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fór fram á Hótel Natura þann 3. febrúar síðastliðinn og var þetta jafnframt 157 afmælisdagur félagsins.
Á hátíðinni veitti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, 20 nýsveinum úr 11 iðngreinum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi síðasta árs.
Í ár hlutu sjö nemendur sem útskrifaðir eru úr Tækniskólanum viðurkenningu:
- Anton Bragi Andrason, rennismíði
- Benedikt Axelsson, gull- og silfursmíði
- Daníel Þór Ágústsson, ljósmyndun
- Hulda Sól Magneudóttir, prentsmíði
- Ívar Daníel Karlsson, prentsmíði
- Marta Staworowska, gull- og silfursmíði
- Víðir Kári Vignisson, múraraiðn
Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.