Menu

Fréttir

10. febrúar 2025

Nýsveinahátíð 2025

Nýsveinar heiðraðir

Nýsveinahátíð IMFR fór fram í 19. skipti, laugardaginn 8. febrúar síðastliðinn, þar sem nýsveinar hlutu viðurkennningu fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi. Þessi uppskeruhátíð er haldin ár hvert af Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík (IMFR) og sjá meistarafélög viðkomandi iðngreina um að tilnefna einstaklinga sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á sveinsprófi.

Alls hlutu 28 nýsveinar viðurkenningu og af þeim eru 13 nýsveinar útskrifaðir úr Tækniskólanum:

  • Gríma Katrín Ólafsdóttir, gull- og silfursmíði
  • Gunnar Guðmundsson, rafvirkjun
  • Nína Guðrún Gunnlaugsdóttir, kjólasaumur
  • Smári Dan Hallgrímsson, húsasmíði
  • Auður Lóa Árnadóttir, hársnyrtiiðn
  • Freyr Torfason, gull- og silfursmíði
  • Hafþór Atli Agnarsson, múraraiðn
  • Hermann Bjarni Sæmundsson, pípulagnir
  • Hörður Örn Kárason, málaraiðn
  • Ísar Máni Ellertsson, rennismíði
  • Karen Björk Wiencke, ljósmyndun
  • Magnús Breki Þórarinsson, veggfóðrun og dúkalögn
  • Össur Hafþórsson, málaraiðn

Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.