Nýsveinahátíð 2026
Nýsveinar heiðraðir

Nýsveinahátíð IMFR fór fram í 20. skipti, laugardaginn 7. febrúar síðastliðinn á Natura Hotel, þar sem nýsveinar hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi. Þessi uppskeruhátíð er haldin ár hvert af Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík (IMFR) og sjá meistarafélög viðkomandi iðngreina um að tilnefna einstaklinga sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á sveinsprófi.
Nýsveinahátíðin var ein sú fjölmennasta frá upphafi og voru 33 nýsveinar í 21 löggiltri iðngrein heiðraðir fyrir góðan árangur.
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, sem jafnframt er verndari hátíðarinnar, veitti viðurkenningar og flutti ávarp til nýsveina. Þá flutti Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra einnig ræðu ásamt Erling Gunnarssyni, nýsveini frá 2023. Elín Hall lék tónlist fyrir gesti og var athöfnin einstaklega hátíðleg.
Alls hlutu 33 nýsveinar viðurkenningu og af þeim eru 15 nýsveinar útskrifaðir úr Tækniskólanum:
- Anna Sigríður Kulp, hársnyrtiiðn
- Birna Sigurjónsdóttir, kjólasaumur
- Daníel Steinar Kjartansson, rafveituvirkjun
- Eiríkur Sigurðsson, prentsmíði
- Helgi Líndal Elíasson, gull- og silfursmíði
- Ívar Kristinsson, rennismíði
- María Lind Baldursdóttir, húsgagnasmíði
- Vigdís Heiðbrá Guðmundsdóttir, kjólasaumur
- Andrea Sól Svavarsdóttir, veggfóðrun og dúklagnir
- Bragi Hreinn Þorsteinsson, pípulagnir
- Fanney Ósk Bjarnadóttir, málaraiðn
- Hans Haraldsson, húsasmíði
- Jón Egill Hafsteinsson, prentsmíði
- Jórunn Margrét Bernódusdóttir, ljósmyndun
- Van Huy Nguyen, húsgagnasmíði

Á vefsíðu Iðnaðarmannafélags Íslands má sjá fleiri myndir frá hátíðinni.
Tækniskólinn óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með frábæran árangur!