Ný kynslóð stafrænna hönnuða

Nemendur í stafrænni hönnun útskrifuðust við skemmtilega athöfn í Laugarásbíói fimmtudaginn 28. maí.
Stafræn hönnun er tveggja ára nám þar sem nemendur læra meðal annars þrívíddarhönnun, kvikmyndabrellur fyrir kvikmyndir og tölvuleikjagerð.
Við athöfnina fengu gestir að sjá fjölbreytt og metnaðarfull verkefni nemenda sem nutu sín vel á hvíta tjaldinu.
Mikil stemning ríkti í salnum og ljóst að þar fór fram útskrift hæfileikaríkra og skapandi nemenda sem eiga framtíðina fyrir sér í heimi stafrænnar hönnunar.
Kvikmyndaplaggöt breyttu stefnunni
Andrés Blær Oddsson hlaut viðurkenningu fyrir besta námsárangurinn við útskriftina en hann er að ljúka sínu fjórða námi í Tækniskólanum á aðeins nokkrum árum.
Hann hóf skólagöngu árið 2019, útskrifaðist úr ljósmyndun árið 2022 og lauk námi í grafískri miðlun árið 2024. Samhliða því lauk hann stúdentsprófi. Nú er hann að ljúka námi í stafrænni hönnun og er á leiðinni í mastersnám í Bournemouth University í Bretlandi þar sem hann hyggst sérhæfa sig í „Digital Effects“ og eftirvinnslu fyrir kvikmyndir.
„Ég vissi í raun ekkert hvert ég ætlaði að stefna þegar ég byrjaði í menntaskóla,“ segir Andrés sem er uppalinn í Hafnarfirði. „Ég hafði alltaf haft gaman af skapandi og verklegum greinum í grunnskóla og byrjaði snemma að leika mér með gamla Canon-myndavél frá mömmu.“
Þegar Andrés hóf nám við Tækniskólann beint eftir grunnskóla hafði hann þó ekki mótað sér skýra stefnu. Það breyttist þegar hann kynntist ljósmyndun.
„Ég sá að ljósmyndun var í boði og fannst það geggjað. Þar kviknaði áhuginn enn meira.“
Andrés segir leiðina í stafræna hönnun hafa verið óvænta.
„Ég vissi ekkert af þessu námi fyrr en ég var að útskrifast úr grafískri miðlun. Þá fékk ég það verkefni að hjálpa til við að prenta plaggöt fyrir sýningu hjá Starfrænni hönnun.“
Þegar kom að því að hengja plaggötin upp inni í deildinni var ekki aftur snúið.
„Ég sá þessa frábæru aðstöðu og fullt af kvikmyndaplakötum á veggjunum. Kennarinn sagði að þetta væru verkefni sem fyrrverandi nemendur hefðu unnið að. Þarna voru verkefni tengd kvikmyndum og þáttum á borð við The Avengers og The Last of Us. Mér fannst það algjörlega galið.“
Í kjölfarið ákvað Andrés að skrá sig í námið og segir skapandi bakgrunn sinn hafa nýst sér vel.
Skapa heila heima í eftirvinnslu
Undanfarið hefur hann unnið mikið í hópaverkefnum þar sem nemendur skipta með sér ólíkum hlutverkum, meðal annars við hönnun, hreyfingar og eftirvinnslu.
„Einn hannar karakter, annar sér um hreyfingar og beinagrind og svo bætir annar nemandi við hreyfingum þegar karakterinn til dæmis hoppar og jörðin brotnar undan honum. Við sjáum því um allt ferlið frá A til Ö. Ég er mest í því að blanda þessu öllu saman, sem er ekki ósvipað eftirvinnslu í ljósmyndun, nema bara á allt öðrum skala,“ útskýrir hann.
Sjálfur hefur Andrés sérhæft sig í eftirvinnslu og samsetningu myndefnis.
„Mér finnst eftirvinnslan langáhugaverðust. Hvernig sprengingar eru búnar til, fígúrur, geimverur og alls konar umhverfi. Þá er verið að skapa heila heima í eftirvinnslunni.“
Hann segir námið byggt upp þannig að nemendur fái á fyrsta ári innsýn í allar helstu greinar stafrænnar hönnunar, meðal annars kvikmyndagerð, tölvuleikjahönnun og auglýsingagerð.
„Þetta er mikil keyrsla og maður er eins og svampur að drekka í sig þekkingu. Síðustu annir einbeitir maður sér svo að sinni sérhæfingu og það er endalaus djúp laug af upplýsingum og lærdómi.“
Mikilvægt að geta unnið í hóp
Aðspurður hvað hafi komið honum helst á óvart í náminu nefnir Andrés hópavinnuna fyrst.
„Það stendur upp úr hvað það er mikilvægt að vinna í góðum hóp. Maður lærir rosalega mikið af því. Svona vinna snýst að mörgu leyti um góða samvinnu og að geta unnið með öðru fólki í verkefnum.“
Hann segir kennarana einnig hafa haft mikil áhrif á sig og telur mikilvægt fyrir fólk í skapandi greinum að læra að taka við uppbyggilegri gagnrýni og nýta sér endurgjöf fagfólks til þess að bæta sig.
Á leið í mastersnám í Bretlandi
Eftir útskrift tekur nýtt ævintýri við hjá Andrési. Hann er á leið í mastersnám við Bournemouth University í Bretlandi ásamt þremur samnemendum sínum. Þar hyggst hann sérhæfa sig enn frekar í Visual effects og eftirvinnslu fyrir kvikmyndir.
„Margir nemendur úr stafrænni hönnun hafa farið í þennan skóla eftir námið og talað vel um hann. Þetta er eins árs nám með möguleika á starfsþjálfun.“
Aðspurður um framtíðaráformin segir Andrés drauminn vera að starfa hjá stóru kvikmyndafyrirtæki eins og Storm Studios í Noregi.
„Ég hef verið að skoða fyrirtæki í kvikmyndabransanum og draumurinn væri að vinna hjá Storm Studios. Þau hafa unnið að verkefnum á borð við Last of Us og Sinners, sem þau hlutu nýverið Óskarsverðlaun fyrir.“
Áhugi hans á töfrandi heimi kvikmyndanna kviknaði snemma.
„Star Wars er fyrsta kvikmyndaástin. Ég man hvað ég var heillaður af geimnum, skepnunum og umhverfinu í myndunum. Ég er samt aðeins búinn að skemma þessa töfra fyrir sjálfum mér því nú er ég alltaf með þá hugsun í hnakkanum: hvernig fóru þau að þessu?“ segir hann og hlær.
Þrátt fyrir spennandi framtíðarsýn og flutninga erlendis segir Andrés líka erfitt að kveðja skólann og fólkið sem hann hefur kynnst þar.
„Þetta er frábært umhverfi og kennararnir eru stórkostlegir. Nemendahópurinn verður mjög náinn og það verður skrýtið að ljúka þessum kafla. Þegar ég fer út til Bournemouth á ég alveg eftir að sakna bæði nemendanna og kennaranna.“
Fékk svigrúm til að fara sína eigin leið

Miðrik Kristján Ivabovic, sem á rætur að rekja til Slóveníu og Svartfjallalands en er fæddur og uppalinn á Íslandi, lauk námi í grafískri miðlun áður en hann hóf nám í stafrænni hönnun. Hann hafði stefnt á nám í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands að útskrift lokinni, en þegar hann uppgötvaði námið í stafrænni hönnun fann hann fljótt að það væri akkúrat námið sem hann hafði leitað að.
„Fyrir nokkrum árum kviknaði áhuginn á hreyfihönnun og ég fór að prófa mig áfram. Námið í grafískri miðlun var mjög góður grunnur og þar lærði ég mikið um hönnun og prenttækni sem nýtist mér enn í dag,“ segir hann.
Þegar Miðrik hóf nám í stafrænni hönnun hafði hann skýrar hugmyndir um hvert hann vildi stefna. Hann segir kennara brautarinnar hafa hvatt sig til að þróa sig á því sviði sem hann hafði mestan áhuga á.
„Áður en ég sótti um í námið ræddi ég við kennarana, sem sögðu að ég fengi tækifæri til að sérhæfa mig á því sviði sem ég hefði mestan áhuga á og nyti stuðnings við það, þótt áherslurnar væru að einhverju leyti frábrugðnar kjarnanum sem er kenndur á brautinni. Ég hafði mikinn áhuga á hreyfihönnun og þrívíddarvinnslu en minni áhuga á tölvuleikjagerð og tæknibrellum, þannig ég fór svolítið mína eigin leið í náminu.“
Hann segir námið hafa haft mikil áhrif á sig sem hönnuð.
„Ég þróaðist mikið sem hönnuður. Ég lærði ekki bara tæknina heldur líka hugmyndafræðina á bak við hönnunina. Fyrsta árið gaf mér sterkan grunn og hjálpaði mér að finna enn betur þá leið sem ég vildi stefna á.“
Aðspurður um stærstu áskorunina í náminu segir Miðrik að hún hafi ekki endilega tengst náminu heldur breytingum í einkalífinu.
„Ég eignaðist dóttur stuttu eftir að ég byrjaði í náminu og það var auðvitað ákveðið pússl en alveg frábært.“
Þrát fyrir aukna ábyrgð heima fyrir segist hann notið sín vel í náminu.
„Mér fannst námið geggjað. Þetta er mikil keyrsla og maður þarf að vera tilbúinn að leggja vinnuna á sig, en ef maður hefur metnað og skýra stefnu er þetta frábært. Fyrsta árið gaf mér mjög sterkan grunn og hjálpaði mér að finna enn betur þá stefnu sem ég vildi.“
Aðspurður hvað honum þyki helst heillandi við skapandi vinnu nefnir Miðrik frelsið til að þróa hugmyndir í flæði án fyrirfram ákveðinnar niðurstöðu.
„Stundum byrjar maður bara á einfaldri línu eða formi og áður en maður veit af er það orðið að stóru verkefni. Það getur byrjað sem hugleiðing eða jafnvel draumur og endað sem eitthvað allt annað en maður sá fyrir sér. Það finnst mér heillandi.“
Hann sækir innblástur meðal annars til erlendra hönnuða sem sérhæfa sig í hreyfihönnun og þrívíddarvinnslu, en hann segir jafnframt að forvitni og tilraunastarfsemi skipti miklu máli í skapandi greinum.
Miðrik hóf störf hjá auglýsingastofunni Ennemm fyrir fjórum mánuðum og segir reynsluna og starfsumhverfið afar jákvætt.
„Ég vinn aðallega við hreyfihönnun en sú þekking sem ég lærði í grafískri miðlun og áhrelsunni á Adobe-forritin hefur nýst mér mjög vel.“
Í framtíðinni stefnir Miðrik á að vinna að stærri verkefnum og frekari sérhæfingu.
„Mig langar að vinna meira með þrívíddarverkefni og stærri framleiðsluverkefni. Ég sé fyrir mér að þróa mig enn frekar áfram bæði í þrívíddar- og tvívíddartækni og dýpka þekkingu mína enn frekar á því sviði.