fbpx
Menu

Fréttir

28. september 2020

Ný miðstjórn Nemendasambands Tækniskólans

Kosningum til miðstjórnar Nemendasambands Tækniskólans (NST) lauk föstudaginn 25. september. Nýja stjórn skipa:

Formaður: Hálfdán Helgi Matthíasson (K2)
Varaformaður: Ólafía Björt Benediktsdóttir (Stúdentsbraut)
Ritari: Hrefna Hjörvarsdóttir (Gull- og silfursmíði)
Fulltrúi nemenda í Hafnarfirði: Helena Dís Friðriksdóttir (Grunnnám rafiðna)
Fulltrúi nýnema: Garðar Máni Ágústsson (Upplýsingatækniskólinn)

Nýja stjórnin tók til starfa mánudaginn 28. september og hefur strax hafið vinnu að undirbúningi viðburða og verkefna fyrir veturinn.

Fyrsta verkefni stjórnarinnar er að auglýsa eftir áhugasömum nemendum í nefndir innan sambandsins og mega nemendur eiga von á ákalli til þátttöku á næstu dögum.