Ný námsskrá í smíðum
Samstarf atvinnulífs og skóla
Viljayfirlýsing um að vinna að þróun og breytingum á námi í prent- og miðlunargreinum var undirrituð í Tækniskólanum. Skólameistari Tækniskólans, formaður GRAFÍU og fulltrúi SI og stjórnarformaður Prentmet Odda skrifuðu undir yfirlýsinguna í húsnæði skólans við Háteigsveg, þar sem útskriftarsýning nemenda í prentun og grafískri miðlun fór fram.
Eitt meginmarkmið breytinganna er að fjölga nemendum í prent- og miðlunargreinum, auk þess að efla fagþekkingu til framtíðar. Nemendur sem taka sveinspróf í faginu öðlast réttindi til að starfa í grafískum greinum og fá tækifæri til þess að sérhæfa sig á því sviði sem þeir kjósa.
Með breytingunum er stefnt að því að sameina allar faggreinar prent- og miðlunargreina undir einu starfsheiti, það starfsheiti verður Grafískur miðlari. Nemendur fá sama grunn en velja svo ýmist áherslu á prentun, prentsmíði eða bókband, sem þjálfast svo enn frekar á vinnustað.
Með fyrirhuguðum breytingum er brugðist við þörf atvinnulífsins fyrir meiri fagþekkingu og hæfni til þess að starfa á breiðara sviði í prentgreinum. Stefnt er að því að ný námsskrá verði tilbúin haustið 2025.