Ný stjórn NST

Niðurstöður kosninga nemendafélags Tækniskólans (NST) liggja nú fyrir og hefur ný stjórn verið kjörin fyrir skólaárið 2026-2027.
Lúkas Logi Grétarsson, nemandi á K2, var kjörinn forseti félagsins og Grímur Jensen Arnarson tekur við embætti varaforseta. Gjaldkeri verður Þröstur Þór Jónsson.
Meðstjórnendur í nýrri stjórn eru þær Júlía Rós Kristinsdóttir, Katrín Rut Atladóttir, Eiríka Ýr Vigfúsdóttir og Alexandra Díana Hjaltadóttir.
Mikilvægt að allir hafi rödd
Lúkas Logi, sem er nemandi á fyrsta ári í Tækniskólanum og hefur verið nýnemafulltrúi 2025-2026, segist ánægður með niðurstöðuna og þakklátur fyrir stuðninginn.
„Tilfinningin er mjög góð. Ég er mjög kátur með að eiga góða vini sem kusu mig. Þetta var smá sjokk í byrjun en nú fer ég að einbeita mér að því að framkvæma og gera,“ segir hann.
Aðspurður um áherslur í nýrri stöðu segir hann mikilvægt að rödd nemenda fái að heyrast betur.
„Ég ætla að vera viss um að allar raddir nemenda skólans fái að heyrast. Það er stundum aðallega verið að ræða hlutina sem svo gleymist að framkvæma. Ég ætla að henda hlutum í gang og fara að framkvæma hugmyndirnar.“
Hann segir verkefnið leggjast vel í sig og undirbúningur sé þegar hafinn.
„Ég er ákveðinn í að gera mitt besta. Ég er að koma mér inn í þetta núna, sumarið fer í að plana nýnemaferð og svo tek ég formlega við í lok sumars, á nýju skólaári. Mér finnst skólalífið vera geggjað og allir svo ánægðir og ég ætla að halda góðri stefnu áfram.“
Ný stjórn tekur formlega við störfum við upphaf næsta skólaárs.