fbpx
Menu

Fréttir

06. október 2021

Nýnemaball Tækniskólans, FÁ og FB

Nýnemaball Tækniskólans, FÁ og FB

Nýnemaball Tækniskólans verður haldið í samvinnu við nemendafélög Fjölbrautaskólanna í Breiðholti og Ármúla. Ballið verður á Spot í Kópavogi fimmtudaginn 14. október. Húsið opnar kl. 21:00 og lokar kl. 22:00 (ekki er hleypt inn eftir þann tíma) og lýkur ballinu á miðnætti.

Fram koma:

DJ Dóra Júlía
Sprite Zero Klan
Jói P og Króli

Miðasala er hafin og kostar miðinn 3500 kr.

Miðasalan er eingöngu fyrir nemendur Tækniskólans, FÁ og FB og fer hún fram í gegnum rafræna miðasölu NST.
Miðasala fyrir gesti (utanskólamiðasala) hefst mánudaginn 11. október.
Utanskólamiðasala er hafin og kostar miðinn 4500 kr.

Nemendasamband Tækniskólans stendur fyrir edrúpotti, þar sem öllum sem koma á ballið verður boðið að blása í áfengismæli til þess að komast í pottinn. Eftir vetrarleyfi verða svo tveir heppnir nemendur dregnir út og fá hvor um sig 25.000 kr. inneign í Kringluna.

Rétt eins og á öðrum viðburðum NST er öll meðferð áfengis og annarra vímugjafa óheimil. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfilegt að koma inn með tóbak (sígarettur, neftóbak eða munntóbak), nikótínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varningur verður gerður upptækur og honum fargað.

Allir sem koma á ballið þurfa að framvísa miðanum við hurðina ásamt niðurstöðum úr neikvæðu hraðprófi vegna COVID-19 frá Heilsugæslu eða frá testcovid.is (sjálfspróf duga ekki). Hraðprófið má ekki vera eldra en 48 klst. gamalt.