fbpx
en
Menu
en

Fréttir

26. ágúst 2022

Nýnemaferð Tækniskólans

— ENGLISH BELOW —

Í upphafi hvers skólaárs býður NST (Nemendasamband Tækniskólans) nýnemum upp á skemmtilega dagsferð þar sem nýjum nemendum skólans gefst tækifæri á að kynnast hvort öðru og félagslífi skólans með skemmtilegri dagskrá og leikjum.

Að þessu sinni er ferðinni heitið á Stokkseyri fimmtudaginn 1. september þar sem boðið verður upp á fimm smiðjur. Eftir fyrstu tvær smiðjurnar verður boðið upp á pizzaveislu frá Domino’s í boði NST. Lagt verður af stað kl. 8:30 og áætluð heimkoma er um kl. 17:00.

 

Skemmtileg dagskrá

Kajak

Smiðjurnar sem verða í boði eru:

  • Bubblubolti
  • Spilasmiðja
  • Kajak
  • Leikjasmiðja
  • Draugasetrið

Enginn er neyddur til þess að taka þátt í neinu sem viðkomandi vill ekki taka þátt í.

 

Miðaverð og leyfi frá kennslu

Allir nemendur sem fara í nýnemaferðina fá leyfi frá kennslu meðan á ferðinni stendur. Aðrir nemendur þurfa að mæta skv. stundaskrá. Miðaverð í ferðina er 5.000 kr.

 

Kynning á félagslífi

Auk skemmtidagskrárinnar verða fulltrúar stjórnar og nefnda NST á staðnum til þess að kynna fjölbreytt félagslíf skólans og að taka við skráningum nýnema í nefndir og ráð. Fulltrúar peysunefndar verða einnig á staðnum að selja NST peysur og annan varning. Loks verður opnað fyrir miðasölu á Nýnemaball Tæknó, Borgó og FÁ í ferðinni og fá nýnemar forgang til miðakaupa í einn sólarhring.

 

Miðasala

Hér má finna miðsölu í nýnemaferðina.

Miðasalan lokar þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13:30 og verður ekki hægt að kaupa miða eftir þann tíma.

 

 

New Student Trip


At the start of each school year NST (The student body council) organizes a trip for new students to introduce the school’s social life to them and give them a chance to get to know each other through various activities and games.

This year we will be visiting Stokkseyri on September 1st where NST is offering 5 workshops. After the first two workshops there will a pizza party, courtesy of NST. The trip will start at 8:30 and is scheduled to end at 17:00.

 

Entertainment and activities

The works­hops that will be available are:

  • Zorb football (Bubble ball)
  • Board game workshop
  • Kajaks
  • Game workshop
  • Ghost museum

No one is forced to take part in any activities they don’t want to.

 

Ticket Prices and leave from classes

All students that take part in the trip will get leave from their classes for the day. Other students have to attend their classes as scheduled. Tickets cost 5000 kr.

 

Promotion of the schools social life

Along with teachers and staff members there will be members of the student body board as well as members of various committees will be there to introduce their roles and why it might be fun for you to take part. NST sweaters will be sold on site for a special price along with other NST merchendise.

Ticket sales for the first student dance of the year will open during the trip. The dance will be held along with two other schools in Reykjavík; Borgarholtsskóli and Fjölbrautaskólinni við Ármúla. New students at these schools will have first dibs on tickets for 24 hours.

 

Tickets

Here you can buy tickets for the new student trip.

Ticket sales close at 13:30 on august 30th and tickets will not be available after that time.