Menu

Fréttir

24. ágúst 2018

Nýnemaferð Tækniskólans

Hin árlega nýnemaferð Tækniskólans verður fimmtudaginn 30. ágúst næstkomandi. Farið verður á Stokkseyri og gist á Arthostel eina nótt. Nemendasamband Tækniskólans stendur fyrir ferðinni og heldur utan um skemmtidagskrá.

Farið verður af stað á hádegi fimmtudaginn 30. ágúst og komið aftur á hádegi föstudaginn 31. ágúst. Þeir nemendur sem skrá sig í ferðina fá leyfi frá kennslu á meðan á ferðinni stendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur mæti í kennslu á fimmtudagsmorgni og eftir hádegi á föstudag.
Lagt verður af stað frá Hafnarfirði kl. 13:00, Skólavörðuholti og Háteigsvegi kl. 13:30. Æskilegt er að allir nemendur mæti með farangurinn sinn í skólann að morgni, en boðið verður upp á að geyma farangurinn í húsnæði skólans. Heimkoma er áætluð kl. 13:00 föstudaginn 31. ágúst og verður hefðbundin kennsla það sem eftir er af föstudeginum.
Hægt verður að geyma farangurinn í skólanum áður en farið er í ferðina.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér föt eftir veðri, svefnpoka/sæng, kodda, dýnu/vindsæng, sundföt og svo er öllum frjálst að koma með snarl til að hafa í rútunni og/eða um kvöldið.

Miðasala í ferðina fer fram á vef Nemendasambandsins og verður send valkvæð rukkun á alla nemendur í gegnum Aur.
Miðaverð er 3000kr. á mann. Innifalið í verðinu er rútuferð fram og til baka, gisting, pylsuveisla, sundlaugapartý, skemmtidagskrá og morgunmatur.
Allir sem fara í ferðina verða að skila inn leyfisbréfi til Valda félagsmálafulltrúa. Hægt er að skila því í tölvupósti á [email protected], í stofu S114 á Skólavörðuholti eða á skrifstofu skólans (á Háteigsvegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti).

Nýnemar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt því ferðin er frábær vettvangur til þess að kynnast félagslífi skólans og samnemendum.