en
Menu
en

Fréttir

02. september 2024

Nýnemaferð

Nýnemaferð fyrir nemendur á Skólavörðuholti

Nýnemaferð fyrir nemendur á Skólavörðuholti sem var frestað vegna veðurs mánudaginn 2. september verður haldin þriðjudaginn 3. september.

Ferðinni er heitið á Stokks­eyri þar sem nemendum býðst að sigla um á kajak, fara í búbblubolta, hópeflisleiki og fleira.

 

Dagskrá

8:45 – Mæting á Skólavörðuholt

9:15 – Brottför

10:15 – Hópurinn mættur á Stokkseyri og nemendum skipt í hópa

12:00 – Grillum pylsur

12:45 – Höldum gleðinni áfram

14:30-15:00 – Rúturnar leggja af stað til baka

15:30–16:00 – Áætluð heimkoma

*Enginn er neyddur til þess að taka þátt í neinu sem viðkom­andi vill ekki taka þátt í.

 

Leyfi frá kennslu

Allir nem­endur sem fara í nýnem­aferðina fá leyfi frá kennslu meðan á ferðinni stendur. Aðrir nem­endur þurfa að mæta skv. stunda­skrá.