fbpx
Menu

Fréttir

28. febrúar 2018

Nýr skólameistari Tækniskólans

Nýr skólameistari Tækniskólans

Stjórn Tækniskólans hefur ráðið Hildi Ingvarsdóttur vélaverkfræðing skólameistara Tækniskólans frá 1. júní nk.

Hildur lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 1999 og M.A.Sc í vélaverkfræði frá Háskólanum í Bresku Kólumbíu í Kanada 2001. Þá hlaut hún réttindi sem framhaldsskólakennari árið 2003.

Undanfarin 12 ár hefur hún starfað hjá Orkuveitu Reykjavíkur og síðustu fimm ár verið forstöðumaður Viðhaldsþjónustu Veitna. Starfsmenn Viðhaldsþjónustu Veitna, sem eru um 100 talsins og flestir iðnaðarmenn, sinna m.a. viðhaldi og eftirliti veitukerfa og vélbúnaðar fyrirtækisins. Hildur hefur því góða innsýn í störf sem menntað er til í Tækniskólanum og þekkir  þarfir atvinnulífsins og kröfur til starfsmenntunar. Hjá Veitum hefur hún tekið ríkan þátt í að efla  vinnustaðanám fyrirtækisins auk þess að vinna ötullega að því að efla áhuga unglinga á iðn- og tæknigreinum. Hildur sat í stjórn Tækniskólans frá 2014-2016 sem fulltrúi Samorku og þekkir því til skólans. Áður starfaði Hildur hjá Almennu verkfræðistofunni og sem kennari í Menntaskólanum í Reykjavík.

Sækja fram í tækniþróun og þróun náms

,,Ég er afskaplega stolt að vera falið þetta hlutverk og hlakka til að kynnast öllu því góða fólki sem gerir skólann að því sem hann er. Ég hef brennandi áhuga á menntamálum og tel að við stöndum á tímum tækifæra en ég skynja verulega vakningu í samfélaginu um mikilvægi iðn- og starfsnáms.  Halda þarf áfram hinni góðu vegferð Tækniskólans, að byggja upp og bæta öflugan og fjölbreyttan iðn- og tækniskóla með góðu félagslífi. Skólinn þarf sífellt að sækja fram í tækniþróun og þróun náms til þess að vera samkeppnishæfur og skila öflugu, vel menntuðu fólki út í atvinnulífið.“

Jón B Stefánsson fráfarandi skólameistari snýr sér að öðrum störfum fyrir Tækniskólann eftir að hann lætur formlega af störfum sem skólameistari:
„Ég fagna ráðningu Hildar og veit að hún á eftir að halda áfram uppbyggingu Tækniskólans og gera hann enn öflugri með frábæru starfsfólki og sterkari tengslum við atvinnulífið.“

Tækniskólinn er stærsti fram­hald­sskóli landsins með ríflega 2000 nemendur og tæplega 300 starfsmenn í 12 undirskólum. Hann byggir á langri og merkri sögu sem tengist atvinnu­lífi landsins á marga vegu. Tækniskólinn er einka­rekinn skóli í eigu Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur og Samorku. Markmið eig­enda rekstr­ar­fé­lagsins er að skólinn skili góðum starfs­mönnum út í atvinnu­lífið.