Menu

Fréttir

23. febrúar 2024

Nýtt fræðsluefni um vinnuvernd

Tækniskólinn hlýtur styrk frá Vinnuverndarsjóði

Verkefni á vegum Tækniskólans var eitt þeirra sem hlaut styrk þegar fyrsta úthlutun úr nýstofnuðum Vinnuverndarsjóði fór fram.

Þröstur Þór Ólafsson, öryggisstjóri Tækniskólans, heldur utan um verkefnið sem snýr að gerð fræðsluefnis um vinnuverndarmál á íslenskum vinnumarkaði fyrir nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn.

Innan Tækniskólans er mikil áhersla lögð á öryggismál og að efla þekkingu á vinnuvernd. Með aukinni fræðslu innan framhaldsskóla á vinnuverndarmálum er vinnuvernd til framtíðar aukin með tvíþættum hætti. Annars vegar með uppfræðslu nemenda um mikilvægi vinnuverndar og hins vegar með því að efla þekkingu og vitund kennara gagnvart vinnuvernd sem skilar sér til nemenda.

Þröstur og Steinunn Björk, brautarstjóri á íslenskubraut, tóku á móti styrknum í húsakynnum Vinnueftirlitsins miðvikudaginn 21. febrúar síðastliðinn.

Við erum virkilega þakklát að þetta mikilvæga átaksverkefni hafi hlotið brautargengi hjá sjóðnum og sannfærð um að nýtt fræðsluefni muni efla vinnuvernd á Íslandi.