Opið fyrir innritun í flugvirkjun
Opið er fyrir innritun í flugvirkjun fyrir haustið 2026.
Flugvirkjanám er kennt samkvæmt EASA Part-66, B1-1 fullt réttindanám sem unnið er í samstarfi við AERO-Bildung í Þýskalandi.
Námið er traust alþjóðlegt nám sem býður upp á mikla atvinnumöguleika, bæði hérlendis og erlendis. Kennslan fer að mestu fram hér á landi í bekkjakerfi og skiptist upp í þrjá meginþætti; bóklegt nám, verklegt nám og vinnustaðanám. Að loknu skólanámi tekur svo við starfsþjálfun á launum. Námið er í heildina fimm annir ásamt 104 vikum í starfsþjálfun.
Sótt er um námið rafrænt og aðeins er tekinn inn einn hópur á ári eða 28 nemendur.
Að loknu námi geta nemendur hafið starfsnám hjá samþykktum og viðurkenndum Part 145 viðhaldsaðila, sem er forsenda þess að öðlast full réttindi sem flugvirki.
Nánari upplýsingar og umsóknarhnapp má finna á síðu flugvirkjunar.