Hannyrðar forritari

Ingibjörg Ösp, útskriftarnemandi á Tölvubraut hönnun við Tækniskólann, hefur vakið athygli fyrir einstaka ullarpeysu með kennimerki skólans sem hún hannaði og prjónaði sjálf.
Ösp er uppalin í Laugardalnum og hefur lengi haft áhuga á stærðfræði, lógískri hugsun og list. Þegar hún kynnti sér námsframboð framhaldsskóla var hún staðráðin í að velja nám sem myndi sameina þessi áhugasvið.
Tölvubraut hönnun varð fyrir valinu og segir hún námið hafa staðist væntingar.
Útfærði munstrið frá grunni
Hugmyndin að peysunni kviknaði út frá áhuga Aspar á að vinna með mynstur og form. Hún ákvað að útfæra kennimerki Tækniskólans í prjónamunstur en ferlið tók tíma og krafðist bæði nákvæmni og útsjónarsemi.
„Það tók um tvær vikur að teikna upp munstrið. Ég byrjaði á að prjóna húfu til að prófa hvernig kennimerkið kæmi út áður en ég gerði peysuna sjálfa,“ segir hún.
Sjálf peysan tók um þrjár vikur í vinnslu og segir hún að það hafi verið tímafrekast að sauma sjálft kennimerkið í bekkinn á peysunni.
Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð og hefur hún boðist til þess að deila mynstrinu svo aðrir geti prjónað sér sambærilega peysu.
Tengsl milli stærðfræði og prjónahönnunar
Að mati Aspar er sterk tenging á milli prjónahönnunar, stærðfræði og forritunar, þar sem þetta þrennt byggir mikið til á mynstrum, reglum og rökhugsun.
„Það er mikil stærðfræði fólgin í því að teikna munstur og útfæra prjónauppskriftir. Ég er viss um að áhuginn á að skapa, hvort sem það er í prjóni eða formúlum, komi frá sama grunni,“ segir hún.
Ösp, sem lærði að prjóna 12 ára gömul, segir prjónið skemmtilega leið til að vinna með hugmyndir. „Ég fæ útrás fyrir sköpun og svo hefur það mjög róandi áhrif að hafa eitthvað í höndunum,“ bætir hún við.
Hún hefur mikið verið að prjóna vettlinga fyrir vini sína og útfæra þá munstur eftir þeirra áhugasviðum.
„Ég hef til dæmis gert Warhammer-vettlinga, bífluguvettlinga og drekavettlinga.“
Stofnaði nördaklúbb
Ösp hefur verið mjög virk í félagslífi skólans og stofnaði meira að segja sinn eigin klúbb í tengslum við klúbbakvöld Tækniskólans, svokallaðan nördaklúbb. Markmiðið var að skapa vettvang þar sem nemendur gætu hist og sinnt sínum áhugamálum, hver svo sem þau eru.
„Við vorum mikið að spila borðspil og halda kynningar á því sem við höfum áhuga á. Þetta var mjög skemmtilegur vettvangur þar sem allir gátu tekið þátt,“ segir hún.
Á leið í alþjóðlega forritunarkeppni á Ítalíu
Áhugi Aspar á forritun hefur leitt hana á spennandi slóðir, hún tók þátt í forritunarvinnustofu á Kanarí í vetur og er nú á leið til Ítalíu þar sem hún tekur þátt í forritunarkeppninni The European Girls’ Olympiad in Informatics, eða EGOI.
„Keppnin hefst 12. júní svo ég er mikið að æfa mig heima, bæði með gömlum dæmum á netinu og svo mæti ég á æfingar líka,“ segir hún.
EGOI er ætluð stúlkum í framhaldsskólum víðs vegar að úr heiminum sem hafa áhuga á forritun.
Stefnir á skapandi nám með áherslu á tækni
Aðspurð hvað taki við eftir útskrift úr Tækniskólanum stefnir Ösp á frekara nám þar sem hún getur sameinað tæknilega þekkingu og skapandi vinnu. Hún ætlar að sækja um á nýrri námsbraut sem unnin er í samstarfi Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, Inda, þar sem lögð er áhersla á slíka nálgun.
„Mig langar að skapa list með tæknibakgrunni í framtíðinni. Ég hef til dæmis mikinn áhuga á tölvuleikjagerð,“ segir hún.
Aðspurð hvaða ráð hún myndi gefa þeim sem eru að íhuga Tölvubrautina segir Ösp námið alveg einstaklega áhugavert og skemmtilegt, jafnvel þó að maður hafi ekki reynslu í forritun.
„Ég kunni enga forritun þegar ég byrjaði, en í náminu er forritunin kennd alveg frá grunni. Námið hentar vel nemendum sem hafa áhuga á að leysa gátur, vinna með formúlur og hafa áhuga á skapandi greinum.“
Hún leggur einnig áherslu á félagslífið og hvetur nemendur til að taka þátt.
„Það getur verið smá erfitt að stíga fyrsta skrefið, en það er alltaf tekið vel á móti fólki. Félagsskapurinn er frábær og gerir upplifunina miklu skemmtilegri.“