fbpx
Menu

Fréttir

05. apríl 2022

Mennta- og barnamálaráðherra
vígði vinnuvélahermi

Heimsókn ráðherra í Tækniskólann

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, heimsótti Tækni­skólann mánudaginn 4. apríl ásamt fylgdarliði úr ráðuneytinu.

Tekið var á móti gestunum á Skólavörðuholti og þeim fylgt í skoðunarferð um húsið. Litið var inn til nemenda og kennara á íslenskubraut, hönnunar- og nýsköpunarbraut, málaradeild, húsasmíði, gull- og silfursmíði, starfsbraut, fataiðndeild og í áfanga í menningarlæsi. Ráðherra sýndi mikinn áhuga á starfsemi Tækniskólans og gaf sig á tal við starfsfólk og nemendur á leið sinni um svæðið.

Að skoðunarferð lokinni var haldið í framtíðarstofu skólans þar sem Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari, flutti kynningu um skólastarfið og Jón B. Stefánsson fjallaði um nýbyggingarmál skólans. Þar gafst gestum einnig tækifæri á að kynna sér starfsemi framtíðarstofunnar, spjalla saman og snæða hádegisverð.

 

Nám í jarðvirkjun hefst af fullum krafti í haust

Ásmundur Einar endaði heimsóknina á því að vígja fyrsta vinnuvéla- og ökuhermi skólans í tilefni þess að nám í jarðvirkjun hefst af fullum krafti í haust. Um er að ræða tveggja ára nám sem hefur verið þróað í samvinnu við Félag vinnuvélaeigenda, Samtök iðnaðarins og Menntamálaráðuneytið.

Ráðherra tók formlega í notkun einn af þremur nýjum vinnuvéla- og ökuhermum sem verða notaðir til verklegrar þjálfunar í náminu. Í hermunum má æfa sig á fjölmargar vinnuvélar og leysa í þeim raunhæf verkefni í fjölbreyttum aðstæðum á öruggan og umhverfisvænan máta. Ráðherra notaði fyrst skurðgröfu og ók svo búkollu og gerði hvort tveggja með prýði.

Viðstaddir vígsluna voru auk menntamálaráðherra,
starfsfólks ráðuneytis, stjórnenda og fulltrúa stjórnar skólans:

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Ásdís Kristinsdóttir, verkefnastjóri þróunar jarðvirkjanáms
  • Bjartmar Steinn Guðjónsson, mannvirkjasviði hjá SI
  • Óskar Sigvaldason, formaður Félags vinnuvélaeigenda
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Vilhjálmur Þór Matthíasson, Félag vinnuvélaeigenda

Heimsóknin var sérlega ánægjuleg og þökkum við Ásmundi og föruneyti hans kærlega fyrir komuna.