fbpx
Menu

Fréttir

27. ágúst 2021

Rafíþróttalið Tækniskólans

Tækniskólinn verður með prufur fyrir rafíþróttalið sem mun taka þátt í rafíþróttamótum, þ.m.t. Framhaldsskólaleikunum, Rafíþróttakeppni íslenskra framhaldsskóla sem haldið verður í vetur 2021. Skráning er hafin í prufur fyrir liðið.

Prufurnar verða haldnar uppúr 9. september og verða rafrænar. Þá mun þjálfarinn leggja mat á þátttakendur og skipa í lið. Gerð verður krafa um að í hverju þessara liða verði fólk af fleiri en einu kyni.

Leitast er eftir spilurum í eftirfarandi leiki fyrir FRÍS mótið:

CS:GO
FIFA
Rocket League
COD: Warzone (Off season mót)

Þar að auki býðst að búa til lið í fyrir eftirfarandi leiki sem munu æfa og taka þátt í öðrum mótum:

DOTA 2
League of Legends
Overwatch

Æfingar verða í umsjón Vigfúsar Karls Steinssonar ásamt vikulegum fundum þar sem öll liðin koma saman.

Skráningu lýkur mánudaginn 6. september.