fbpx
Menu

Fréttir

22. maí 2019

Risa-LAN

Risa-LAN

Dagana 31. maí – 2. júní stendur Nemendasamband Tækniskólans fyrir stærsta LANi skólans frá upphafi, en alls eru 500 pláss á viðburðinum sem hingað til hefur einungis hýst 100 manns hverju sinni (og alltaf selst upp).

LAN Tækniskólans er rótgróinn viðburður sem haldinn er einu sinni á önn. Fram til þessa hefur viðburðurinn verið haldinn í matsal skólans og hafa færri komist að en vilja.

Miðasala og leyfisbréf

Að þessu sinni verður viðburðurinn fimmfalt stærri og haldinn í íþróttahúsinu Digranesi. Miðasala er í fullum gangi á miðasöluvef NST. Rétt eins og á fyrri LAN-mótum skólans þurfa þátttakendur sem ekki eru orðnir 18 ára að skila leyfisbréfi. Leyfisbréfum er skilað þegar mætt er á viðburðinn.
Viðburðurinn er að sjálfsögðu vímuefna- og tóbakslaus og verður þeim sem brjóta reglur vísað á dyr.

Vegleg verðlaun

CS:GO, League of Legends, PUBG og Rocket League eru leikir sem keppt verður í á LANinu og eru frábærir vinningar í boði.
Frábært samstarf hefur náðst við styrktaraðila á borð við Origo, Hringdu og Lenovo. Með þeirra stuðningi verður boðið upp á vegleg verðlaun í hinum ýmsu keppnum og ber þá helst að nefna 100.000 kr. peningaverðlaun fyrir sigurliðið í CS:GO og 50.000 kr. peningaverðlaun fyrir sigurliðið í League of Legends.

Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook viðburði LANsins eða hjá Margeiri F. Pálssyni, formanni LAN nefndar:
[email protected]
S: 696-6726