Samnorrænt samstarf

Ljósmyndasýningin Borders & Boundaries er samstarfsverkefni nemenda í starfsnámi á Norðurlöndum. Sýningarnar, sem ganga undir heitinu NU-sýningar, hafa verið haldnar árlega frá árinu 2017 og eru skipulagðar af Yrkesinstitutet Prakticum í Helsinki.
Þema sýningarinnar árið 2026 er Borders & Boundaries þar sem nemendur nálgast hugtakið mörk og landamæri frá ólíkum sjónarhornum í gegnum ljósmyndun.
Dagný Guðmunda Sigurðardóttir, Guðrún Tómasdóttir og Heiða Rún Guðmundsdóttir, nemendur Tækniskólans á sérsviði í ljósmyndun, taka þátt í verkefninu ásamt 12 öðrum nemendum frá Finnlandi og Svíþjóð.
Uppskera þessa samstarfs verður sýnd í Norræna húsinu frá 10. mars – 5. apríl, með opnunarhátíð þriðjudaginn 10. mars frá kl. 17-19.
Skapandi vinna í forgrunni
Markmið verkefnisins er að efla tengslanet og styrkja þróun miðla- og listmenntunar á Norðurlöndum. Verkefnið veitir nemendum og skólum vettvang til að hittast, miðla reynslu, kynna verk sín og auka sýnileika skapandi vinnu.
Frá árinu 2016 hafa um tvö hundruð nemendur frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Íslandi og Finnlandi tekið þátt í verkefninu.
Á hverju ári er leitað nýrra leiða til að efla samstarfið, auka fræðslu og skapa tækifæri fyrir nemendur og kennara til að deila þekkingu og reynslu milli landa.
Hér er hlekkur á nánari umfjöllun um sýninguna í Norræna húsinu.

