Menu

Fréttir

10. júní 2024

Siglingaþjálfun í glæsilegu björgunarskipi Landsbjargar

Tvíhliða samkomulag á milli Tækniskólans og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var undirritað fyrir helgi, um menntun félagsfólks Landsbjargar hjá Tækniskólanum og aðgang skólans að nýjasta björgunarskipi félagsins til kennslu. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans og Víglundur Laxdal Sverrisson skólastjóri Skipstjórnarskólans og Véltækniskólans, hittu framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar í skólaskipinu Sæbjörgu við Reykjavíkurhöfn og skrifuðu undir samstarfið.

Víglundur segir þetta mjög eftirsóknarvert fyrir nemendur í skipstjórn, að fá tækifæri til þess að kynnast tækjabúnaði skipanna, sem er hinn besti – sem og möguleikann á að sinna kennslu við raunaðstæður. Samstarfið er mikill akkur fyrir báða aðila, að mati Víglundar, en það tekur Björn J. Gunnarsson undir Verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu.

„Það skiptir okkur hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu gríðarlega miklu máli að geta mannað skipin okkar með hæfu og góðu réttindafólki. Og til að fá réttindafólk er ein leið að fara í gegnum smáskipanám og Tækniskólinn er því að styðja rausnarlega við bakið á félaginu með þessum samning.  Á móti kemur að skólinn fær aðgang að velbúnum björgunarskipum félagsins í samstarfi við okkar félagsfólk, þetta er því skref framfara fyrir okkur og skólann.„

Björgunarskipið Jóhannes Briem er eitt af þeim skipum sem verða sérstaklega notuð  í þetta verkefni og er skipið vel tækjum búið. Sem dæmi er í skipinu sérstakt þotudrif – í stað skrúfubúnaðar – sem er knúið áfram af tveimur Scania mótorum. Skipið gengur 30 sjómílur á klukkustund og hluti af öðrum búnaði er hitamyndavél og botnsjá.